UNGAR BE-BOP STJÖRNUR Framhald af bls. 14. Ásamt þeim Lennie Tristano, George Shearing og Oscar Peterson á Erroll eftir að hækka veldi píanósins enn að mun í hinum glæstu sölum nútíma jazz- tónlistar. J. J. Johnson, er nafn hans meðal jazzleikara, en hann heitir James Louis Johnson og fæddist fyrir tuttugu og sex árum. Hann byrjaði að leika á píanó 11 ára, en svo á trombón 14 ára. Hann varð brátt góður trombónleikari, eins og sjá má á því, að hann fer að leika með hljómsveitum 17 ára gamall og nokkru síðar er hann byrjaður með jafn þekktum hljómsveitum og Benny Carter og Count Basie. Síðan 1946 hefur hann mest verið í Htlum hljómsveium, eins og margir Be- bop leikarar, og hefur hann mikið leikið inn á plötur. Stíll hans er einhver sá allra tekniskasti, sem heyrzt hefur, hin hraða tækni hans á þetta erfiða hljóð- færi er líkast því sem verið væri að leika á trompet, og standa margir agndofa, Þegar J. J. tekst sem bezt upp. J. J. Johnson lék um skeið með Illi- nois Jacquet á síðasta ári, en hefur síð- an aðallega verið með eigin hljómsveit, sem mikið hefur leikið á næturklúbb- um í New York. SVÖR VIÐ SPURNINGUM Á BLS 17 Svörin má öll finna í efni síðasta heftis, en þau eru sem hér segir: 1. !942; 2. Benny Aaslund; 3. 23 ára; 4. Carl Jones; 5. Kanadískur; 6. Maynard Ferguson; 7. Svend Hauberg. UR ÝMSUM ÁTTUM Framhald af bls. 7. Jazzblaðið gegnir nú þegar stærsta hlutverkinu sem fréttablað og fræðari um jazz hér á landi og ég óska því þess, að það verði ávallt árvakur málsvari hinna (nú þegar) fjölmörgu unnenda jazzins á Islandi. Þorst. Helg. Sendið ,,Úr ýmsum áttum" bréf um áhugamál ykkar. Fullt nafn og heim- ilisfang verður að fylgja bréfunum, annars verða þau ekki birt, en hins veg- ar verða þau birt undir dulnefnum eða skammstöfunum, ef bréfritari óskar þess. KENNSLU AUGLÝSINGAR byrja aftur í næsta hefti. Þeir, sem hafa hugsað sér að auglýsa, tali við afgreiðsluna sem fyrst. Vl* jii /ýazzbtadíð íO