Jazzblaðið - 01.12.1952, Blaðsíða 16

Jazzblaðið - 01.12.1952, Blaðsíða 16
FRÉTTIR í stuttu máli Stöðugur straumur amerískra jazz- leikara hefur verið til Evrópu undan- farnar vikur. Louis Armstrong hefur verið á hljómleikaferðalegi um flestöll Evrópulöndin undanfarið og hefur koma hljómsveitarinnar hvarvetna vakið stór- kostlega athygli. Leikur nljómsveitar- innar er hins vegar af öllum gagnrýn. endum sagður frekar lélegur. — Dickie Wells trombónleikari hefur einnig verið í Evrópu, og heillað alla með sínum ágæta trombónleik. Margir muna senni- lega eftir leik hans á fjölda mörgum plötum með Count Basie. — Nýlega fór sex manna Dixieland hljómsveit frá Bandaríkjunum til Evrópu, stjórnandi hljómsveitarinnar er trompetleikarinn Jimmy Archy og með honum er m. a. jafn kunnir Dixieland leikarar og Pops gamli Foster bassaleikari. Hljómsveit- in leikur í Evrópu eitthvað fram eftir vstrinum. — May Lou Williams píanó- leikari er í hljómleikaferð í Englandi og hefur fengið óviðjafnanlegar mót- tökur. Mun hún ef til vill leika víðar i Evrópu. — í Englandi er nú verið að sýna George Gerswhin óperuna „Porgy and Bess“, og er einn af laikendunum hinn gamalkunni hljómsveitarstjóri Cab Calloway. — Lee Konitz er hættur hjá Stan Kenton, kaupið var það hæsta sem sögur íara af, Konitz var ekki ánægð- ur með andrúmsloftið. Uppáhaldsmúsik- antar Konitz nr. 1, 2 og 3 eru nefnilega Tristano, Tristano og Tristano. — Ný- lega er hafin útgáfa á 33 snúninga plöt- um í Svíþjóð og ennfremur 45 snún- inga. — Talsverður hluti þeirra jazz- platna, sem gefnar eru út í Englandi, eru leiknar af sænskum jazzleikurum. Svíarnir Arne Domnerus, Lars Gullin Reinhold Svensson og fleiri eru allt eins kunnir í Englandi og amerísku jazzleik- ararnir Parker, Garner o. fl. — Sérstak- lega margar góðar jazzplötur voru gefn- ar út í USA á síðasta ári og mun blaðið birta yfirlit yfir þær helztu í næsta hefti. — Ronnie Scott hefur stofnað 5 manna liljómsveit og er altó/- baritón-saxófónleikarinn Harry Klein með honum. — Sænski trompetleikar- inn Rolf Ericsson er nú fiuttur til USA. Hann var þar fyrir tveimur . árum etns og kunnugt er með jafn frægum hljóm- sveitum og Charlie Bar- net og Woody Herman. P. TI»onif*Men Iðk |»es.s:» inynd af Torulf Tollefsen t. 1». oj; Hra/va HlfíSlicrjs:, er Tollefsen var á lil.jóinleika- ferfia Iajvi liár I sepfeinlier. 16 ^MaíiÁ

x

Jazzblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.