Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Tķmarit Tónlistarfélagsins

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Tķmarit Tónlistarfélagsins

						Tímarit  Tónlist.arfélagsins

Bsekur

Dr.   Erik   Abrahamsen:    „Tónlistin".

Þýdd   af   dr.   Guðm.   Finribogasyni.

A síðastliðnu hausti kom í fyrsta sinni út á íslenzku

bók um tónlistina almennt. Var það Þjóðvinafélagið, sem

fyrst réðist á vaðið um útgáfu slíkrar bókar. Höfundur

hennar er dr. Erik Abrahamsen í Kaupmannahöfn, sá sem

flutti hér fyrirlestra við háskólann fyrir nokkrum árum;

en * dr. Guðm. Finnbogason annaðist þýðinguna. Bókin

flytur lesandanum á 177 bls. undirstöðufræðslu um flest

er að tónlist lýtur, svo sem: byggingu lags, eðli hljóðfalls-

ins, hljóma, hreina tónlist og hermitónlist, tónlistarform,

sögu tónlistarinnar o. fl. Er hún því sannkallaður hval-

reki fyrir tónlistarvini, og ennfremur ættu allir þeir, sem

hlusta á tónlistarflutning útvarpsins, hið bráðasta að fá

sér hana, því margir munu þeir vera sem átta sig jafn-

lítið á symfóníum Beethovens og fúgum Bachs og útlend-

ingar á dýrt kveðnum sléttubandavísum, og er það ekki

vanzalaust, þar sem um jafnmikið menningarmál er að

ræða og tónlistina.

Dr. Guðm. Finnbogason hefir með þýðingu sinni leyst

stórt verk af hendi, þar sem hann af mikilli snilli hefir

skapað fjölda af íslenzkum tónlistarorðum. Var þar áður

ekki um auðugan garð að gresja, en þó ber að nefna

að próf. Sigfús Einarsson hafði þýtt — og það ágætlega —

mörg orð hljómfræðinnar, enda hefir G. F. haldið þeim

í þýðingu sinni. Ég skal láta ósagt hvort öll nýyrðin muni

festast í málinu, en eflaust munu mörg þeirra ná hylli

tónlistarmanna. Væri óskandi að dr. G. F. lyki við hafið

verk og fyndi góð þýðingarheiti á hinum erlendu tón-

listarorðum, sem máli skipta og enn eru eftir.

Bók þessi ætti að verða kennslubók í öllum skólum

með þroskaða  nemendur  og  myndi  þá  nauðsyn  hennar

brátt  koma  í  ljós.  —  Hafi  stjórn  Þjóðvinafélagsins  og

dr. Guðm. Finnbogason þakkir fyrir hana.

12

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16