Tímarit Tónlistarfélagsins - 01.11.1938, Blaðsíða 10

Tímarit Tónlistarfélagsins - 01.11.1938, Blaðsíða 10
Tímarit Tónlistarf élagsins Hljómleikar Á seinni árum hefir verið fátt um hljómleika hér í höf- uðstað landsins og svo hefir og verið síðustu mánuðina, þó nokkuð hafi lifnað með haustinu. Á yfirstandandi krepputímum leggja sárafáir erlendir listamenn leið sína hingað, til þess að gefa okkur kost á að heyra til sín. Helzt er þess þó að vænta á vorin, ef slíkum mönnum dettur í hug að taka sér ferð á hendur til að kynnast landinu, er það klæðist sumarskrúði sínu. Ungfrú Pearl Pálmason hefir áður verið getið, en hún hélt 'hljómleik í júní fyrir Tónlistarfélagið við ágætar móttökur áheyrenda. Aðalviðfangsefnin voru La Folia eftir Corelli—Kreisler, Sonata í c-moll eftir Beethoven og konzert eftir Paganini. Margir munu þá hafa vonazt eftir að hún héldi opinberan hljómleik, en af því varð' samt ekki fyrr en 30. sept. Þá lék hún veigamikið prógram, Chaconne eftir Bach, Sónötu í a-dúr eftir César Franck og Introduction og Rondo Capriccioso eftir Saint-Saéns, auk smærri verkefna. Ungfrú Pálmason er ágætur fiðluleikari, tækni hennar er mikil og meðferðin víða fáguð. Var t. d, flutningur hennar á sónötu Francks hinn ágætasti, en ekki get ég látiö hjá líða að geta þess, hve leiðinlega sónatan var slitin í sundur með lófaklappi og blómum. Áheyrendur virðast oft eiga erfitt með að halda hrifningu sinni í skefjum, ef einhver þögn eða hlé kemur milli þátta. Ungfrú Pálmason mun nú fara til framhaldsnáms í Lon- don, og má búast við, að hún eigi eftir að geta sér frægðar- orð fyrir list sína. Árni Kristjánsson annaðist undirleik- inn á báðum hljómleikunum og gerði það með mikilli prýði, eins og hans er venja. Haraldur Sigurðsson heimsótti ættland sitt í vor og hélt hljómleik 14. júní. Um leik hans hefir oft veriö ritað og alltaf á einn veg. Það er alltaf óblandin ánægja að hlusta á leik hans. Verkefnaval og meðferð ber merki hins vand- láta listamanns. Stefán Guðmundsson söng með undirleik Haraldar, ítölsk og frönsk óperulög og fjögur íslenzk lög, í þaö skipti sem 58

x

Tímarit Tónlistarfélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Tónlistarfélagsins
https://timarit.is/publication/723

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.