Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Jazz

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Jazz

						GREIN UM HUOMSVEIT

WOODY HERMAN,

SEM NÚ ER BEZTA JAZZHUÓM-

SVEIT   BANDARÍKJANNA.

Getur hann

bjargað hinum hvíta jaxz?

Hljómsveitir Woody Herman's og Du\e

Ellington eru beztu hljómsveitir, sem

nú eru til. Hljómsveit Woody's hefur

algerlega breytt hinu venjulega áliti á

því, hvernig hljómmagn stórrar jazz-

hljómsveitar á að vera.

Woody Herman er um þrítugt.

Hann keypti fyrsta saxófóninn þegar

hann var 9 ára og byrjaði að spila á klarinett,

er hann var ellefu ára. Hann spilaði í mörg-

um áhugamannahljómsveitum, en 1939 réð

hann sig í hina frægu hljómsveit Isham Jones.

„Ég held að þeir hafi tekið mig, vegna

þess að ég söng laglega," segir Woody.

Woody er viss um að hann sé betri söngv-

ari en sólóisti á klarinett.

Eftir að hafa haft hljómsveit sína í tvö ár

varð Isham Jones leiður á stjórnendastárfi

sínu og hætti, en hljómsveitin hélt áfram

á samvinnugrundvelli.

listar munu liggja frammi í flestum bó\a- og

hljóðfœraverzlunum bœjarins.

Að endingu vonum við að þetta byrjenda-

starf muni bera árangur, og hann mun nást,

ef jazzunnendur eru nógu einhuga i fram-

gangi áhugamáls síns.

Ritstjórinn.

Þeir gerðu örvæntingarfullar tilraunir til

þess að fá hljómplötufélagið „Decca" til að

taka nokkrar plötur með hljómsveitinni, og

Woody segir um þær tilraunir: „Við höfðum

sérstaklega skemmtilega útsetningu á laginu

I can't give you anything but love í valstakt,

og mér fannst það hljóma vel, en „Decca"

vildi ekki leyfa okkur að spila inn á plötur.

Við höfðum aðeins eina fiðlu, en með því

að nota flautu og þrjú klarinett í stíl við

Kostalanetz, fengum við það til að hljóma

eins og fjöldi strokhljóðfæra.

Hljómsveitarmeðlimirnir höfðu uppgötvað

hæfilika Woody's til að stjórna og fólu hon-

um stjórn hljómsveitarinnar. Henni var síðan

breytt í hreina jazzhljómsveit og í sex vikur

var unnið af fullum krafti að æfingum á hin-

um mörgu nýju útsetningum, og sá ákafi

og „músikgleði" ,er hljómsveitarmeðlimirnir

sýndu, hlaut undir stjórn rétts manns að

vekja athygli.

2   JAZZ

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8