hafa á hinn hvíta jazz er enn ekki hægt að segja um, en hún lítur út fyrir að valda byltingu bæði á útsetningunni og hljómsveit- arsamsetningunni. Mikill hluti af útsetning- um Woody's eru hinar svo nefndu Head Arrangements", þ. e. a. s. að útsetningarnar verða til í höfði hljómlistarmannanna. Negrahljómsveitirnar og sérstaklega hljóm- sveit Ellingtons og Basie nota þessa aðferð, en það er nýtt að hvítar hljómsveitir noti hana. Utsetjari hljómsveitarinnar er hinn 23 ára pínóleikari, Ralph Burns, einn af færustu út- setjurum Bandaríkjanna. Hann fer sínar eig- in götur, en játar að hann sé mikið undir áhrifum Stravinskys og Ravels, bæði sem tón- skáld og útsetjari. Af jazzhljómsveitum heldur hann mest upp á Duke Ellington. Utsetningar hans eru alltaf sérkennilegar, og hann biðlar ekki til áheyrenda með hinum svo nefndu Cheap Arrangements", og þar af leiðir að hljóm- sveit Woody's er í sérflokki. Hljómsveit Woody's er í dag: 5 saxófónar (sex þegar Woody spilar með) 4 trompetar, 3 trombónar, píanó, bassi og tromma auk söngkonunnar Frances Wayne. Hljómsveitarmeðlimirnir eru allir um tvít- ugt og það hlýtur að vekja undrun, hve góða teknik" þeir hafa. Þeir hafa allir full- komna stjórn á hljóðfærum sínum en þeir nota aldrei teknik" sína til smekklausra akróbatiskra" sólóa, eins og mörgum dug- legum hljómlistarmönnum hættir til, svo sem Harry James. Stravinsky hefur fullgert fyrstu hljómkviðu sína fyrir jazzhljómsveit og heitir hún Ebony hljómkviðan" og er tileinkuð hljómsveit Woody's, er spilaði hana í Carnegie Hall í New York, þar sem jazzinn fær sjaldan að- gang. 4 JAZZ