Wien, 2 saxófóna, 1 trompet, 1 trombón, 1 bassa, 1 harmónikku, 1 trommu og svo píanó. T. Hvernig dansmúsik spiluðuð þið mest?" B. Við spiluðum enska og ameríska jazz- músik og svo rússneska músik. Rússnesk dansmúsik, sérstaklega tangóar, er mjög melódisk" og er byggð á laglínunni en ekki eins og ensk-amerísk jazzmúsik á hljómum og rythma"." T. Hvernig eru danshljómsveitirnar í Austurríki?" B. Þar eru 45 mjög góðar hljómsveitir 1618 mannar, og þar hefur verið tekinn upp nýstárlegur siður. 45 danshljómsveitir taka sig saman og halda hljómleika á sunnu- dagsmorgnum, hver leikur í 15 til 20 m,nútur og er þetta mjög athyglisvert og vinsælt. T. Hvernig er áhugi Austurríkismanna á dansmúsik?" B. Þar skiptist unga fólkið í tvo hópa, annar hópurinn vill rólega músik, er veitir frið og hvíld, en hinn finnur enga fróun í þessari tilbreytingarlausu músik, finnst hún , þreytandi og þráir improvissionir" og aðrar tilbreytingar í themanu"." T. Hvaða álit hefur þú á Boogie Woogie?" B. Að mínum dómi á þessi músiktegund sér ekki langan aldur hún er of bundín við bassann, er ekki nógu frjáls og hefur þar af leiðandi takmarkaða þróunarmöguleika." Þessi músiktegund er upprunalega gerð til þess að fá bassann sem sterkastann og jafnast- ann, og er mjög skemmtilegt að spila hana. T. Hvaða ameríska hljómsveit líkar þér bezt?" B. Af stórum Artie Shaw, af litlum Benny Goodman með sextett og jafnvel kvartett. Af enskum hljómsveitum líkar mér bezt Joe Loss". T. Hvaða píanóleikara líkar þér bezt við?" B. Nr. 1 Earl Hines og nr. 2 hinn hálf- blinda Art Tatum. Duke Ellington finnst Beztu jazzhljómsveitír Ameríku 1946 Swinghljómsveitir: 1. Woody Herman, 2. Duke Ellington, 3. Count Basie. Sweet"-hljómsveitir: 1. Tommy Dorsey, 2. Charlie Spivak, 3. Duke Ellington. Litlar hljómsveitareingingar: 1. Cing Cole, trió, 2. Louis Jordan, 3. Eddie Heyvood. Litlar Söngeiningar: 1. Pied Pipers, 2. Ink Spots, 3. Mills Brothers. King of Corn: 1. Spike Jones, 2. Guy Lom- bardo, 3. Harry James. Söngvarar án hljómsveitar: 1. Louis Jordan, 2. Kin'g Cole, 3. Joe Turner. Söngl{onur án hljósveitar: 1. Mildred Bailey, 2. Ella Fitzgerald, 3. Billy Holiday. mér mjög sérkennilegur og persónulegur lista- maður." T. Hvað hefur þú hugsað þér í framtíð- inni'.. B. Það er erfitt að svara þessari spurningu. Ég ætti enga ósk heitari en að mega vera hér kyrr, en til þess þarf ég að fá landvistar- leyfi og dvalarleyfi og ég veit, að það er sér- staklega erfitt að fá dvalarleyfi. En ég vona allt bið bezta." Við kveðjum Billich og vonum að íslenzk dansmúsik megi lengi njóta krafta hans. T. A. 6 JAZZ