Jazz - 01.04.1947, Blaðsíða 15

Jazz - 01.04.1947, Blaðsíða 15
Bréfakassinn Trpt skriíar. Við atkvæðagreiðslu tímaritsins Jazz finnst mér eftirfarandi athugavert: 1. Rétt væri að skylda hvern þann, er sendir atkvæðaseðil til blaðsins, að skrifa fullt nafn undir, því að með þessu fyrirkomulagi geta allir sent svo marga seðla sem þá lvstir og með því gert kosningarnar ógildar. 2. Það er og óheppilegt og tíðkast ekki er- lendis (a. m. k. í Ameríku) að lesendur velji nema einn mann, þann, sem þeim finnst beztur og síðan ræður fjöldi atkvæða hver er beztur. Þetta vildi ég benda á fyrir næstu atkvæða- greiðslu. Jazz fer'vel af stað, en þarf aðeins að vera stærra. Svar: Við þökkum fyrir bréf Trpt, því okkur þykir eins og áður er sagt, mjög vænt um að fá bréf og leiðbeiningar frá lesendum okkar. Þeim spurningum, er Trpt beinir til okkar, þykir okkur vænt um að geta svarað, þar eð við höfum tekið eftir að þessi atriði hafa valdið misskilningi. 1. Ef enhver hljóðfæraleikari, væri áfjáður um að koma sjálfum sér að, myndi han n, þó að þyrfti að rita fullt nafn og jafnvel heimilis- •fang, geta fengið vini og kunningja til að skrifa undir og svo mundi hljómsveitarmenn sjálfir verða útilokaðir frá að taka þátt í at- kvæðagreiðslunni, því að ekki gætu þeir kosið sig sjálfir, og ekki mundu þeir (a. m. k. í flestum tilfellum) gefa öðrum hljómsveitum atkvæði sitt. í Bandaríkjunum eru fengnir nokkrir sér- fræðingar í Jazz til að láta uppi álit sitt á hverjir séu beztu menn ársins svo að það er ekki sambærilegt. 2. Talningu atkvæða er þannig hagað, eins og stendur í formálanum, að sá, er verður nr. eitt á atkvæðaseðli fær 3 stig nr. 2 tvö stig og nr. 3 eitt stig. Þetta var gert með tilliti til þess að margir íslenzkir hljóðfæraleikarar eru svo jafnir og hafa svo jafna hylli að þessi aðferð gerir meiri jöfnuð. En það er auðvitað álitamál hver aðferðin er hægari, því að það hefur heyrzt, að einn af lesendum blaðsins hafi sagt, þegar hann var að fylla út eitt eyðublaðið: „Þetta er nú meiri h........skriffinnskan“. Maður skyldi halda að þetta væri lijá bæjarskrifstofunni“. Við vonum, að Trpt sé ánægður með þessi svör, en um leið söknum við fulls nafs undir. Nína skrifar: Við eru hér nokkrar stúlkur, sem þykir mjög gaman af jazz, en okkur finnst svo vont að fá teksta við mörg af þeim lögum, sem við heyrum. Gæti ekki Jazz birt nokkra teksta í hvert skipti er, það kemur út. Einnig vildum við fá blaðið helmingi stærra og vikulega helzt. Við vildum mega benda Jazz á, að í sið- asta tölublaði stendur smágrein um sírúps- söngvara, eða sætsúpusöngvara, og verð ég að segja að þetta vakti mikla gremjti í okkar lióp og erum við þó eldri en 14—16 ára. I okkar hóp er Frank Sinatra nr. 1 og Dick Haymes nr. 2 og ég get ekki hugsað mér neitt fallegra en söng þeirra. Væri ekki hægt ag fá grein um Frank Sinatra? Svo vildum við þakka fyrir þetta braul- JAZZ 13

x

Jazz

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazz
https://timarit.is/publication/724

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.