Jazz - 01.05.1947, Blaðsíða 6

Jazz - 01.05.1947, Blaðsíða 6
Það nýjasfa í jazx Kæru lesendur! Ég get ekkki lýst því, hve glaður ég varð, er ég frétti gegnum vin minn Tage Ammen- drup að stofnað hefði verið Jazzblað á Islandi. Ég álít það mikið skref til að kynna góða jazzmúsik og ætla að óska tímaritinu alls hins bezta og megi því vel farnast. Er ég dvaldi með hernum í Reykjavík varð ég mjög undrandi, er ég heyrði hve mikið fólk vissi yfirleitt um jazz og jazzhljómsveit- ir og t. d. veit fólk á Islandi mun meira um Bandariskar hljómsveitir en fólk á Englandi. SIGI held ég einnig að hafi átt mikinn þátt í þesssum kynnum, nú í Bretlandi t. d. heyr- ist mjög sjaldan Bandarísk dagskrá og plöt- ur með enskum hljómsveitum eru teknar framyfir í útvarpinu. ejtir Harry Dawson Þó áhugi fyrir hljómlist í London sé mikill eru hijómleikasalir ekki vel sóttir. Næturklúbbar hafa orðið illa út úr kola- skortinum og má segja að á næutrklúbbum þar sem áður hafa komið 100—200 manns komi nú 20 og margar stórar enskar hljóm- sveitir hafa verið leystar upp t. d. Ambrose og Nat Gonella en við vonum að með vorinu rætist úr þessu og að hægt sé að endurskipu- leggja þessar hljómsveitir því að flestar stærstu hljómsveitir Bretlands leika á stórum baðhót- elum á sumrin t. d. Blackpool. Það nýjasta frá U.S.A. Woody Herman er hættur við hljómsveit sína vegna þess að enginn vildi ráða hann. Hann heimtaði 7000 dollara á viku fyrir sig og hljómsveit sína. Count Basie fer til Evrópu næsta vor. Hann er væntanlegur til Englands fyrst. Hljómsveit Glenn Miller nýtur mjög mik- leg er íslendingum, því að þær hljómsveitir, er koma hingað á vegum Jazzklúbbsins verða fyrsta flokks og þá má ræða þetta mál nánar. En svo er önnur hlð á þessu máli og hún er sú, að hljómsveitirnar, er koma hingað, eru yfirleitt ráðnar til svo skamms tíma að ekki er hægt að koma ferðalögum við. En strax að hausti munum við athuga málið og sjá hvað hægt er að gera. Við erum hér nokkrar ungar stúlkur, er vildum biðja tímaritið Jaz um að birta lagið „Sveetheart of all my dreams" við fyrsta tækifæri. Svar: Lagið er á óskalista. Að gefnu tilefni skal það tekið fram að ekki er til neins að biðja okkur um ráð í matreiðslu eða ráð um meðferð húðarinnar, við höfum jafnlitla þekkingu á því ag hátt- virtir lesendur.

x

Jazz

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazz
https://timarit.is/publication/724

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.