Jazz - 01.06.1947, Blaðsíða 3

Jazz - 01.06.1947, Blaðsíða 3
Hugleiðingar um tónlistxirlífið Það hefur vakið athygli þeirra, er jazz unna að tveir menn, er nefna sig „Tónlistar- vin“ og „Síðhærður“ hafa tekið sig til og hafið árásir á tímaritið Jazz, Jón M. Arnason og jazzinn yfirleitt. Þessar greinar eru mjög svipaðar að efni og stíl til og er ekki ólíklegt að sami maðurinn hafi ritað þær báðar, þær eru skemmtilega ritaðar, í hálfgerðum skrítlustíl, en efnið er hin venjulega slagorðasúpa, er þeir menn nota, er nefna sig jazzhatara. Það má segja um báðar þessar greinar það sama og um flestar þeirra greina, er ritaðar eru móti jazz, að efnið er að miklu leyti slagorðasúpa, er stafar af þekkingarleysi höf- undanna, því að þeir er þekkja jazz, rita ekki þannig. Það, er hvetur þessa menn til að rita slíkar greinar er efalaust sú hræðsla, er hefir gripið marga þá menn, er þykjast bera klassiksa tón- list fyrir brjósti og geta ekki skilið að til séu menn svo lausir við alla fordóma að þeir geta hlustað á hljómlist án þess að dæma fyrirfram. Eins og sjá má í þessu blaði þá hafa ís- lenzku jazzistarnir í viðtölum sínum við blað- ið látið í ljósi ósk um að geta jafnframt leik sínum í jazzhljómsveitum einnig leikið með í stórri íslenzkri symfóníuhljómsveit, en það er draumur allra ungra hljóðfæraleikara. En ef það skyldu vera til þeir hljómlistar- unnendur, er hafa fráhverfst klassisku hljóm- listina og gengið jazzinum á hönd og eftir grein félaganna að dæma er það svo, þá er ástæðan steinrunnið tónlistarlíf, ekki dautt það væri ekki sannleikur, heldur steinrunnið. Sú klassiska hljómlist er við 'höfum fengið seinustu árin hefur verið of einhæf, Beethoven, Bach og stundum Hándel leikin af sama fiðluleikaranum, og Islendingar hafa verið dáðir um allan heim (sjá íslenzku blöðin) fyrir að hafa getað setið á járnstólunum í Tripólí í 3 klukkutíma án þess að kveinka sér og hlustað á Bach, leikinn á fiðlu án und- irleiks, og þótti þetta afrek. Svo ári seinna kemur hingað danskur pí- anóleikari og leikur nútíma hljómlist í þessu sama húsi, hann lék verk eftir Hindemith, Bartok, Bentson og fleiri, en fólkið ypti öxl- um og „kritikkinn" dæmdi með föðurlegum mildleik þennan nútíma píanóleikara, víst um það, hann kemur ekki aftur til eyjunnar fögru við sundin blá. Einnig hafa komið hingað tveir ágætir fiðluleikarar aðrir og leikið fyrir hálftómu húsi, þessir fiðluleíkarar hafa verið dáðir um allan heim og færustu „kritikerar‘ hafa lýst aðdáun sinni á leik þeirra, en hérna voru þeir dæmdir óhæfir vegna þess að þeir voru ekki á vegum þeirra réttu. A hljómleikum þessum gat að líta þá, er voru hinni sönnu unnendur klassiskrar tón- listar í Reykjavík, þeir voru ekki fleiri en 400—500. Þetta er í sjálfu sér varhugavert, en ráðið við þessu er ekki að ráðast á jazzinn, því hann heldur áfram þróun sinni vegna þess að víðsýni er undirstaða hans, heldur á að JAZZ 3

x

Jazz

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazz
https://timarit.is/publication/724

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.