Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Jazz

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Jazz

						Hugleiðingar um rónlisrarlífið

Það hefur vakið athygli þeirra, er jazz

unna að tveir menn, er nefna sig „Tónlistar-

vin" og „Síðhærður" hafa tekið sig til og

hafið árásir á tímaritið Jazz, Jón M. Árnason

og jazzinn yfirleitt.

Þessar greinar eru mjög svipaðar að efni og

stil til og er ekki ólíklegt að sami maðurinn

hafi ritað þær báðar, þær eru skemmtilega

ritaðar, í hálfgerðum skrítlustíl, en efnið er

hin venjulega slagorðasúpa, er þeir menn

nota, er nefna sig jazzhatara.

Það má segja um báðar þessar greinar það

sama og um flestar þeirra greina, er ritaðar

eru móti jazz, að efnið er að miklu leyti

slagorðasúpa, er stafar af þekkingarleysi höf-

undanna, því að þeir er þekkja jazz, rita

ekki þannig.

Það, er hvetur þessa menn til að rita slíkar

greinar er efalaust sú hræðsla, er hefir gripið

marga þá menn, er þykjast bera klassiksa tón-

list fyrir brjósti og geta ekki skilið að til

séu menn svo lausir við alla fordóma að þeir

geta hlustað á hljómlist án þess að dæma

fyrirfram.

Eins og sjá má í þessu blaði þá hafa ís-

lenzku jazzistarnir í viðtölum sínum við blað-

ið látið í ljósi ósk um að geta jafnframt leik

sínum í jazzhljómsveitum einnig leikið með

í stórri íslenzkri symfóníuhljómsveit, en það

er draumur allra ungra hljóðfæraleikara.

En ef það skyldu vera til þeir hljómlistar-

unnendur, er hafa fráhverfst klassisku hljóm-

listina og gengið jazzinum á hönd og eftir

grein félaganna að dæma er það svo, þá er

ástæðan  steinrunnið  tónlistarlíj,  ekki   dautt

það væri ekki sannleikur, heldur steinrunnið.

Sú klassiska hljómlist er við höfum fengið

seinustu árin hefur verið of einhæf, Beethoven,

Bach og stundum Hándel leikin af sama

fiðluleikaranum, og Islendingar hafa verið

dáðir um allan heim (sjá íslenzku blöðin)

fyrir að hafa getað setið á járnstólunum í

Trípólí í 3 klukkutíma án þess að kveinka

sér og hlustað á Bach, leikinn á fiðlu án und-

irleiks, og þótti þetta afrek.

Svo ári seinna kemur hingað danskur pí-

anóleikari og leikur nútíma hljómlist í þessu

sama húsi, hann lék verk eftir Hindemith,

Bartok, Bentson og fleiri, en fólkið ypti öxl-

um og „kritikkinn" dæmdi með föðurlegum

mildleik þennan nútíma píanóleikara, víst

um það, haiin kemur ekki aftur til eyjunnar

fögru við sundin blá.

Einnig hafa komið hingað tveir ágætir

fiðluleikarar aðrir og leikið fyrir hálftómu

húsi, þessir fiðluleíkarar hafa verið dáðir um

allan heim og færustu „kritikerar' hafa lýst

aðdáun sinni á leik þeirra, en hérna voru

þeir dæmdir óhæfir vegna þess að þeir voru

ekki á vegum þeirra réttu.

Á hljómleikum þessum gat að líta þá, er

voru hinni sönnu unnendur klassiskrar tón-

listar í Reykjavík, þeir voru ekki fleiri en

400—500.

Þetta er i sjálfu sér varhugavert, en ráðið

við þessu er ekki að ráðast á jazzinn, því

hann heldur áfram þróun sinni vegna þess

að víðsýni er  undirstaða hans, heldur  á að

JAZZ   3

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16