Axel er fæddur árið 1927 og hefur leikið á guitar í 3 ár. Mest dálæti hefur Axel á guitarleikaranum Charlie Christian og Mike Brian og svo að sjálfsögðu Django Reinhard. Axel hefur áhuga á klassiskri hljómlist jafn framt og er n'u að læra á kontrabassa í Tón- listarskólanum. Það kom engum á óvænt að Sveinri Ólafs- son var kjörinn bezti saxófónleikarinn. Sveinn hefur alla kosti góðs jazzleikara, Improvisionir hans eru hnitmiðaðar og leikni hans er frábær. Sveinn er jafnfær í jazz og klassiskri hljómlist og lék áður á viola í quartett Tónlistarskólans. Sveinn leikur nú í hljómsveitinni á Borg. Count Basie Bill Basie fæddist árið 1906 í Red Bank, New Jersey. Hann byrjaði snemma að leika á píanó og fyrstu árin lék hann aðeins fyrir kaffi og kökum, eins og hann orðar það sjálf- ur. Þar til er Benny Moten frá Kansas City réði hann til sín. I mörg ár var Basie útsetjari og sólóisti hljómsveitarinnar þar til hann tók við hljómsveitinni eftir dauða Motens árið 1935. Undir stjórn Basie réðu þeir sig við Reno klúbbinn í Kansas City og byrjuðu að leika í útvarp og vekja athygli. John Hammond er vann hjá M.C.A. stærsta ráðningarfélagiinu í Bandaríkjunum kom auga á Basie og eftir það má segja að braut Basie hafi verið blóm- um stráð. Fyrsta er félagið gerði var að breyta nafhi Basie úr Bill Basie í Count Basie og útveguðu honum og hljómsveit hans vinnu við Rose- land gistihúsið í New York. Einnig lék Basie á plötur fyrir Decca m. a. Roseland Shuffle, Honeysuckelrose og Penn- ies from heaven. Stuttu síðar breytti Basie hljómsveitinni og byggði hana upp á sólóistum, hann sjálfur við píanóiðí Lester Young, og Herchel Evans (er dó úr hjartaslagi árið 1939) Bassaleikar- Framhald á bls. 13. JAZZ 1 1