Jazz - 01.06.1947, Blaðsíða 12

Jazz - 01.06.1947, Blaðsíða 12
-t,, Um trommuleikara Eftir Svavar Gests Tromma er álitin vera eitt elzta hljóðfæri heimsins og þess vegna álít ég það viðeigandi að byrja yfirlit mitt yfir fræga hljóðfæraleik- ara með því að minnast nokkra þeirra beztu er uppi eru eða voru. Fyrst má nefna Gene Krupa. Hann hefur verið trommuleikurunum það, sem Coleman Hawkins hefur verið saxófónleikurunum. Gene Krupa er fæddur í Chicago árið 1909. Hann hefur aldrei lært að leika á trommu en þrátt fyrir menntunarskort sinn hefur hann ritað góðar kennslubækur í trommuleik. Krupa byrjaði að leika með Red Nichols, en árið 1934 réð hann sig til Benny Goodman, og má segja að braut hans hafi verið blómum stráð frá þeim degi að telja. Arið 1938 hætti Krupa hjá Goodman og stofnaði eigin hljómsveit og er hún mjög vinsæl og hefur m. a. leikið í kvikmyndum. Gott dæmi um leikni Krupa, er platan „Sing, Sing, Sing“ með hljómsveit Good- mans. Næst má frægan telja Buddy Rich, er var kjörinn bezti trommuleikari Bandaríkjanna í / ar. Buddy byrjaði að leika á trommu, er hann var þriggja ára. Fyrsta hljómsveitin, er hann lék með var hljómsveit Joe Marsala, og er hann hætti þar réð hann sig til Bunny Berri- gan og loks lenti hann hjá Tommy Dorsey. Hjá Dorsey var Buddy í mörg ár, og er hann hætti þar til að stofna eigin hljómsveit, þótti Dorsey hljómsveitin fara að tapa sér, og leystist loks upp. Sidney Catlet er fæddur árið 1910, og lék með mörgum hljómsveitum áður en byrjað var að veita honum athygli, og árið 1944 var hann kosinn trommuleikari Bandaríkjanna nr. 1. Það tíðkast mjög að beztu menn á hvert hljóðfæri eru fengnir til að leika inn á plötur og er Sid venjulega fenginn til þess, sem bezti trommuleikarinn. Einnig má nefna Cozy Cole trommuleik- arann í King Cole-tríóinu. Cozy fæddist árið 1909, en byrjaði ekki að læra á trommu fyrr en 18 ára að aldri. Ekki leið á löngu áður en Cozy byrjaði að leika með frægum hljómsveitum eins og t. d. Linoel Hampton og Cap Calloway. Helztu plötur með Cozy eru: „Crescendo in Durm“ og „Pardiddle" en þær lék hann báðar með Calloway. Dave Tough er af mörgum álitinn bezti trommuleikarinn, sem til er, og er það aðal- lega vegna þess, að Dave virðist eiga heima í nær hverri hljómsveit sem er. Það er sama hvort hann leikur „hot“ með Berrigan, „Dixiland" með Condon eða Swing með Goodman. Dave varð að hætta í hinni frægu hljóm- sveit Woody’s vegna slæmrar heilsu, er kom af erfiðum ferðalögum. Dave leikur nú með smáhljómsveit í New York, sem í eru m. a. Charlie Ventura og Bill Harris. Frh. Bráðlega mun koma í bóka- og hljóð- færaverzlanir bæjarins lögin Tooraloo- raog Please don’t say „No“, er birtust í 2. og 3. tbl. Jazz. 12 JAZZ

x

Jazz

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazz
https://timarit.is/publication/724

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.