Jazz - 01.06.1947, Blaðsíða 13

Jazz - 01.06.1947, Blaðsíða 13
Count Basie frh. af bls. 11. inn Walter Paige og Buck Cleyton á trompet. Með þessari áhöfn sló Basie í gegn og lék með hljómsveit sinni í mörgum kvikmynd- um m. a: Réville with Béverly, „Stage Door Canteen“ og fleirum. Eins fingur stíll Basie varð svo vinsæll að fjöldi píanóleikara um heim allan léku ná- kvæmlega eins og Basie eða réttara sagt reyndu það. Þó Basie sé ekki eins vinsæll nú og áður er hann samt álitinn með beztu hljómsveitar- stjórum Bandaríkjanna. Meðal platna er Basie hefur leikið eru m. a. „Mad Boogie“ og hinum megin „Bambo“ eftir Basie einnig „Royal Garden Blues“ „Jitt- ers“ Buggle Blues“ og einni hið þekkta „One O’Clock }ump“. Ef spurt væri hvaða lag hefði verið leikið fyrst á þýzkri jörð eftir innrásina, myndi svarið e. t. v. verða „There will always be an England“ eða „Lilli Marlene, nei ekki aldeilis fyrsta lagið er leikið var eftir innrásna var One O’Clock Jump eftir Bill Basie daglega kallaður Count. Bréfakassinn Svar við grein Trpt. Við þökkum fyrir bréfið, og efums ekki um að það sé vel meint, ins og áður er tekið fram í blaðinu, tökum við með þakklæti á móti öllum greinum frá lesendum vorum og öllum góðum hugmyndum. Við myndum stynga upp á að Trpt. sendi okkur greinar og sínar hugmyndir um það, hvernig hlaðið ætti að vera, og okkur væri sönn ánægja að fara eftir ráðleggingum Trpt Rex Steward heimsækir ísland Þareð Joe Daniels gat ekki komið vegna forfalla hefir Jazzklóbburinn ráðið hingað Sextett Rex Stewards ásamt söngkonu og mun hann halda að líkindum tvo hljómleika hér. 1 næsta blaði mun birtast það helzta um Steward. Rex Steward hefur leikið með hljómsveit Ellingtons sem fyrsti trompetisti í fjölda mörg ár, en hefur nú stofnað eigin sextett eins og fjöldi annarra frægra hljómsveitarleikenda eins og t. d. Charlie Ventura, Johnny Hodges (hann er nú kominn aftur til Ellingtons) og Gene Krupa svo fáein dæmi séu nefnd. Sextett Stewards hefur mjög góðum nöfn- um á að skipa og mun verða birt æviatriði Stewards og manna hans í næsta blaði. Steward mun koma í október-mánuði. að eins miklu leyti og það er hægt. Þökk fyrir áhugann á blaðinu. Eru ekki til plötur með íslenzkum dans- hljómsveitum, t. d. Bjarna Böðvars og hvar fást þær? Pési. Svar: Það hafa ekki verið teknar upp plötur til framleiðslu með íslenzkum danshljómsveit- um enn sem komið er a. m. k. JAZZ 13

x

Jazz

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazz
https://timarit.is/publication/724

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.