Jazz - 01.06.1947, Blaðsíða 14

Jazz - 01.06.1947, Blaðsíða 14
Uppruni og þróun jazzins 1■ grein. Þessi greinaflokkur, er nú byrjar í þessu hefti tímaritsins Jazz á að vera nokkurs kon- ar yfirlit yfir þróun jazzins og æviágrip þeirra manna, er haft hafa áhrif á þróun hans. Þetta mun ekki vera neitt tæmandi yfirlit, heldur á þetta að vera nokkurs konar þróun- arsaga þessarar tónlistargreinar og skýring á eðli og uppruna jazzins. Kvikmyndahússgestir hafa oft skemmt sér við að líkja „rythrna" Tam-Tam trommunn- ar við rythma nútíma jazz. Líkingunni er ekki hægt að neita, rythmi Tam-Tam trommunnar og rythmi nútíma jazz er mjög líkur. Jazzinn mætti kalla yngstu og elztu hljómlist heimsins. Negrarnir í Afríku hafa að líkindum leikið á sínar Tam Tam trommur löngu áður en lúðrar fornald- armannanna hafa verið fundnir upp. En vísirinn að nútíma jazz kemur fyrst fram um 1890, er negrahljómsveitirnar byrja að leika á fljótabátum á Missisipi og í borg- inni New Orleans. Margir jazzsérfræðingar t. d. Hugues Panassie, hinn frægi franski jazzsérfræðing- ur, halda því fram að jazzinn hafi náð há- marki sínu árið 1920 og síðan hafi verið um stöðnun eða jafnvel afturför að ræða. Það er vafalaust að mikil breyting hefur orðið á jazzinum og hann er nú ekki svip- aður þeim jazz, er þá var leikinn. Jazzinn 1920 var að miklu leyti leikinn af ómenntuðum negrahljómsveitum, en nútíma jazz er leikinn af frægum hljóðfæraleikurum, er margir hverjir hafa gengið í beztu hljóm- listaskóla og hafa feikilega „teknik“. Þetta timaritið JAZZ Útgefandi Hljóðfæraverzl. Drangey Ritstjóri Tage Ammendrup Afgreiðsla Laugaveg 58 Símar: Auglýsingar og ritstjórn 3311 Afgreiðsla 3896 ALÞÝÐUPRENTSMIÐJAN H-F orsakar m. a. að jazzinn verður mun fágaðri en jafnframt vill það oft bera við að „teknik“ sé beitt um of og má nefna Harry James sem gott dæmi. En það má segja að öllu samanlögðu að jazzinn er ekki staðnaður, þvert á móti leitar hann ávallt nýrri leiða, og má segja að hann breytist ár frá ári. Jazz er orðinn til fyrir samstarf milli hvítra og svartra manna. Er þrælarnir komu til Bandaríkjanna höfðu þeir með sér hin sér- kennilegu og sorglegu lög heimalands síns og hinn einkennilega rythma og er tímar liðu fram fengu þeir áhuga á hljóðfærum hinna hvítu, sérstaklega blásturhljóðfærunum t. d. básúnu, trompet, og klarinetti og þarmeð voru fyrstu jazzhljómsveitirnar til orðnar. Það einkennilega við jazzinn er að þó hann, einsog áður segir hafi orðið til vegna samstarfs hvítra og svartra er það sjaldgæft að negrar leiki með hvítum hljómsveitum og á þetta sérstaklega við í Bandaríkjunum, þó eru til einstakir hljómsveitarstjórar, sem eru fúsir til að ráða negra í hljómsveitir sínar og má t. d. nefna Benny Goodman og hann hefur haft marga framúrskarandi duglega negra í hljóm- sveit sinni og má t. d. nefna Linoel Hampton og Fletcher Henderson. Framhald. 14 JAZZ

x

Jazz

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazz
https://timarit.is/publication/724

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.