Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Jazz

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Jazz

						Frægur hljómsveitarstjóri deyr

Jimmie Lunceford deyr aðeins 45 ára gamall

Ameríska útvarpið tilkynnti þann 14. júlí,

að Jimmie Lunceford hinn frægi svarti hljóm-

svcitarstjóri hefði dáið úr hjartaslag.

AFN í Þýzkalandi og fleiri amerískar-

stöðvar hafa minnst hins látna með minn-

ingarútsendingu, þar sem leiknar hafa verið

plötur Luncefords og getið helztu æviatriða

hans.

James Lunceford eða Jimmie eins og hann

var kallaður, fæddist árið 1902 í Denver Colo-

rado, hann er háskólagenginn og hefir lokið

BA prófi og er prófessor í hljómlist og að

réttu lagi ætti að titla hann prófessor James

Melvin Lunceford.

Við háskólann stofnaði hann níu manna

hljómsveit og hafa fimm þeirra verið áfram

með Lunceford og má telja það með eindæm-

um.

Lunceford fékk sína eigin hljómsveit árið

1929, og náði hún brátt miklum vinsældum.

Leikur hljómsveitar Luncefords var með af-

brigðum fágaður og var hún brátt álitin með

beztu hljómsveitum og henni líkt við Basie,

Ellington og Henderson og árin kringum

1930 var Lunceford álitinn hafa „slegið" Ell-

ington út, og hafði hann einnig sérstaklega

góðum nöfnum á að skipa.

Hljómsveitin var skipuð á þssa leið 1930:

Trompet: Sy Oliver, Paul Webster, Snookie

Young, Eddie Tompkins, Tommy Stevenson,

Gerald Wilson.

Saxófónar: Joe Thomas, Willie Smith, Earl

(Jock) Carnuthers, Dan Grissom.

Trombónar: James (Tr.ummie) Yong,

Russel Bowles, Elmar Crumbley, Jimmy

Crawford

Joe Marshall tromma, Al Norris guitar, Ed

Wilcox píanó og Moses Allen bassi.

En ekki tókst samt að koma Ellington úr

fyrsta sætinu, en Lunceford var samt á

topnum til ársins 1942 er hann misti flesta

af sínum beztu mönnum, og misstu þá margir

álit sitt á Lunceford, en árið 1944 hafði

hann endurskipulagði hljómsveit sína og var á

góðri leið með að taka við sínu fyrra sæti

meðal jazz-hljómsveitarst)óra, er dauða hans

bar að.

Lunceford var list sinni alltaf trúr og voru

útsetningar hans alkaf stílhreinar og fínlegar

og vottuðu um hinn óvenjuþroskaða smekk

meistarans.

Með Lunceford er fallinn í valinn einn af

merkustu jazz-hljómsveitarstjórum vorra tíma

á bezta aldri og þykir öllum jazzvinum sorg-

legt að hafa ekki getað notið krafta hans

lengur, en við megum hugga okkur við að

leikur hans varð til þess að auka fylgi jazz-

ins og opna augu fjölda manna um heim

allan fyrir fegurð og margbreytileik jazzins.

Plötur, er þér ættuð að heyra með Jimmie

Lunceford og hljómsveit:

Jimmie Lunceford and his Chickasaw Syn-

JAZZ  3

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16