Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Jazz

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Jazz

						r. >

Nýjustu fréttir

Tímartið Jazz hefir nú fengið gefin upp

nöfn þeirra manna, er koma með Rex Ste-

wart, og eru það þessir.

Rex Stewart, trompet.

Sandy Williams, trombón.

John A. Harris, clarinett.

Vernon Story, tenór saxófón.    *

Timmie Tanner, píanó.

Pedcurry, trommur.

Söngvari Honey Johnson.

Einnig eru líkur til að með Stewart komi

danskur bassisti, en ekki höfum við fengið

nafn hans enn.

Að líkindum mun ekki koma annað blað

fyrir komu Stewarts, svo til gamans má geta

helstu æfiatriða þessara hljóðfæraleikara.

Sandy Williams er fæddur 1907 í Wasing-

on D. C. Hann er þekktur fyrir hve vel

hann leikur blues, smekklegur er hann með

afbrigðum og tónninn fallegur, í „Session"

nýtur hann sín sérstaklega, og er hann og

Jack Teagarden hafa lent saman í „Session"

vill Teagarden heldur hlusta á Sandy en leika

sjálfur. Sandy hefir leikið með fjölda hljóm-

sveita og má nefna t. d. Henderson, Chick

Webb, Raymond Scott, Duke Ellington,

Eddie Condon og Ellu Fitzgerald.

John A. Harris, betur þekktur undir nafn-

inu „Johnie the Buffalo King", er clarinett-

snillingur. Hann lék um tíma í hljómsveit

14   JAZZ

Stuff Smiths, annars hefir hann haft annars

konar vinnu um hönd og ekki haft tíma til

að leika lengi í einu með hljómsveitum, svo

það má teljast heppilegt mjög að Stewart

skyldi takast að ráða hann hingað.

Vernon Story er fæddur 1923 í Atlantic

City og útskrifaðist ungur úr „Institude of

Modern Arts", og hefir síðan leikið með

mörgum frægum hljómsveitum t. d. Erskine

Hawkins, kallaður ,The 20. Century Gabriel',

Cab Calloway og Louis Jordan.

James „Jimmie" Tanner er fæddur 1923 í

Missisippi. Er afar mikill „tekniker" og hefir

getið sér gott orð. Hann hefir leikið með

Tiny Bradshaw, McKinneys, Cotton Pickers

og W. Bryant.

Honey Johnson er ekki einungis mjög fær

söngkona, heldur er hún mjög góður píanó-

leikari og dansmær. Hún leikur jazz á píanó

jafnhliða klassiskri hljómlist, og það má segja

um ungfrú Johnson að hennar aðal og eina

áhugamál er hljómlistin.

Duke Ellington hélt hljómleika í War Me-

morial óperunni fyrir troðfullu húsi.

Söngvarar voru Kay Davis og Chester

Grumbler og Duke hafði bætt við sig Tyree

Glenn á Víbrafón.

Samkvæmt Downbeat va'r fyrri hluti hljóm-

leiksins misheppnaður en Duke náði sér upp

á C Jam Blues og Honeysuckle Rose er bæði

vöktu mikla hrifningu.

Annars hefir hljómsveit Ellingtons misst

marga beztu krafta sína, þó ennþá hafi hún

Hodges, Carney og Sonny Greer, en fróðlegt

verður að sjá við næstu kosningar, hvort

Duke heldur sæti sínu

Sidney Bechet hefír leikið inn á tvær plöt-

ur fyrir Columbia.

Á annari plötunni leikur hann með Bob

Wilbur og hljómsveit hans, en á hinni með,

rythma-tríói og leikur Pop Foster á bassann.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16