Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Musica

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Musica

						Úr hliómlistarlífinu

Hin nýstofnaða sinfóníuhljómsveit Reykjavíkur

hélt fyrstu tónleika sína 20. jan. undir stjórn Victors v.

Urbantsohitsch, einleikari með hljómsveitinni var

Rögnvaldur Sigurjónsson.

Það má segja að nokkur óvissa hafi einkennt Mjóm-

sveitina á þessum hljómleikum, en ef athugað er hve

stutt hljómsveitin hafði æft, má telja furðanlegt hve

miklu stjórnandanum hafði tekizt að ná úr henni.

Píanóleik Rögnvalds Sigurjónssonar má telja „há-

punkt" hljómleiksins, tækni hans og hispursleysi setti

skemmtilegan  og  léttan  blæ  á  meðferðina.

2. h'ljómleikar sveitarinnar voru haldnir í marz, og

voru það Mozarthljómleikar undir stjórn Róberts

Abraham.

Einleikari með sveitinni var Egill Jónsson clarinett-

leikari.

A þessum hljómleikum sást glögglega, hve mikið

sveitinni hafði farið fram, og var léttur og skemmti-

legur blær yfir yfir öllum flutningnum. Einleikur

Egils var með afbrgðum, léttur og syngjandi, og naut

hin mikla tækni Egils sín að fullu.

Yfirleitt má segja að þessir hljómleikar hafi verið

með afbrigðum.

kennslu er hann kom heim, og urðu kennslustörfin

brátt svo umsvifamikil, að hann varð að snúa sér al-

gerlega að þeim og hefur svo verið síðan.

Við stöfnun Tónlistarskólans hætti Sigurður

kennslu í fiðluleik, sem þó var aðalfag hans, svo og

cellóleik, þar eð hann áleit þá kennslu í góðum hönd-

um, og sneri sér algerlega að mandólín- og gítar-

kennslu.

Sigurður hefur kennt þúsundum nemenda af öll-

um stéttum á öllum aldri, og var t. d. elztí nemandi

hans 79 ára, en sá yngsti 6.

Gítar- og mandólín-kennslubækur Sigurðar eru

kunnari en að það þurfi að lýsa þeim hér.

Gítarkennslubækurnar eiga að vera í fimm heftum,

og eru komin út 3, en hin væntanleg á næstunni, en

mandólínskólinn á að vera 3 hefti, en út eru komin 2.

Þessar bækur eru að allra áliti snilldarverk, og gef-

Framh. á bls. 17.

Vonandi heldur svekin þau fyrirheit, er hún hefur

gefið með þessum tveimur hljómleikum, og þá hefur

hún ráðið bót á einni alvarlegustu hindrun fyrir

framgangi  tónlistarlífsins  hér  á   landi.

Ruth Hermans ]iðlúlei\ari

hélt hljómleika með aðstoð Árna Kristjánssonar í

Austurbæjarbíó í febr. síðastliðnum á vegum Tónlist-

arfélagsins.

A efnisskránni voru eftirtöld lög: D-dúr sónata

Hándels, Chaconne Bachs, A-dúr sónata César

Francks og fiðlukonsert Mendelssohns.

Nokkuð var efnisskárin þung í vöfum, og í fiðlu-

konsertinum, er var síðast á efnisskránni, gætti nokk-

urrar þreytu í leik ungfrúarinnar.

Leikur ungfrú Hermans var mjög stílhreinn og

fágaður og tæknin mjög mikil. Má Tónlistarskóli Ak-

ureyrar hrósa happi yfir að fá slíkan fiðlulikara, sem

ungfrú Hermans er, sem kennara við skólann.

Reykvíkingar vænta þess, að ungfrú Hermans gefi

sér tíma til að skreppa hingað við og við til hljóm-

leikahalda.

Annars er merkilegt ef athugaðar eru efnisskrár

þeirra fiðluleikara, er hingað hafa komið hve þær

eru keimlíkar. Undantekningarlítið hafa iþeir leikið

fiðlukonsert Mendelssdhns, einnig flestir D-dúr són-

ötu Hándels og svo mætti lengi telja.

Við treystum því að þeir, er að bljómleikum standa,

atíhugi þetta.

Sigurður Shagjield

óperusöngvari hefur haldið hér nokkra hljómleika í

februarmánuði.

Voru undirtektir áheyrenda ágætar og aðsóknin

gífurleg. Bezt tókust aríukvöld hans og var auðsjá-

anlegt að þar átti hann heima.

Einar Mar\an

hélt   söngskemmtun   í   janúar   og   tókst   hún   vel.

Einar hefur verið utan um margra ára skeið og yfir-

leitt hlotið góða dóma fyrir söng sinn.

Húsið var þéttskipað.

10  MUSICA

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32