Myndin sýnir Lilly Pons, er Auriot jor- seti Frat\kjands smdi hana heiðursmerhj í París í haust. Maður hennar horjir á. England. Richard Tauber dó í febrúar í Englandi, og verður hans getiS náar seinna. I Englandi hefur söngleikur Benja?nin Britten, The Rape of Lucretia", verið sýndur í 150 skipti. Nú er einnig byrjað að sýna hana í Bandaríkjun- um með söngvurum eins og Regina Resnik og Belva Kibbler í aða'lhlutverkunum. Von er á Philharmoniuhljómsveitinni í Berlín til London og verður Furtwangler stjórnandi. Eileen Joyce, hinn frægi brezki píanóleikari, er nú á förum til Bandaríkjanna í hljómleikaferðalag. Englendingar hafa nú tekið mynd, er fjallar um líf fiðlusnillingsins heimsfræga, Paganini. Myndin er tekin af Joseph Rank kvikmyndahringn- um brezka, og eru aðalleikendurnir Stewart Granger, er leikur Paganini, Phyllis Calvert, er leikur Jeanne de Vermond, og Cecil Parker, er leikur Garmi, um- boðsmann Paganinis. Svo óbeppilega vill til, að myndin er byggð á sögu Manuels Komroffs, en sú saga er með afbrigðum væmin og líf snillingsins gert að væminni, viðburða- snauðri keðju hljómleika og ástarævintýra. En hljóm- listin er stórkostleg, en hana annast Yehudi Meniihin og The National Symhpony orc, undir stjórn Basil Cameron. Lagavalið er víðast smekklegt og hljómlistin ein réttlætir að nokkur sjái myndina. Italir hafa kvikmyndað Rigoletto eftir Verdi og hefur myndin hlotið sæmilega góða dóma. Leikendur eru Michel Simon, leikur Rigoletto, Rossano Brazzi leikur konunginn og Maria Mercader leikur Gildu. Benjamino Gigli fer væntanlega í hljómleikaferða- lag um alla Evrópu á næstunni og mun hann m. a. koma til Svíþjóðar og Danmerkur. Hvernig er fjár- hagurinn hérna? Höfum við efni á að ráða hann hingað? Rise Stewens, hin fræga ameríska söngkona, var kjör- in bezta söngkona Bandaríkjanna árið 1948 í skoðana- könnun. meðal útvarpShlustenda. Robert Merill var kjörinn bezti karlsöngvarinn. N.B.C. sinfóníuhljóm- sveitin var kjörin bezta hljómsveit landsins. Arthur Rubinstein bezti píanóleikarinn og Jascha Heifetz bezti fiðluleikarinn. Toscanini var kjörinn bezti stjórn andinn og organisti E. Power Biggs. Kirsten Flagstad, norska söngkonan fræga, hefur verið á hljómleikaferðalagi um Bandaríkin, en þar ætlar hún að líkindum að setjast að, en hún yfirgaf Noreg í fdssi, er maður hennar var dæmdur fyrir föðurlandssvik. Danmört\. Konunglegi ballettinn í Kaupmannahöfn mun fara til Belgínu og Hollands og að líkindum Frakklands á næstunni. Ballettmeistarinn Harold Lander er nú að æfa pró- gram fyrir hina fyrirhuguðu ferð og verður efnisskrá- in samsett af dönsk'um dönsum og dönsum annara þjóða. I þessari ferð ballettsins mun taka þá auk ballett- meistarans fyrsta ballettdansmærin Margot Lander og margir af hinum yngri kröftum ballettsins m. a. Inge Sand, Stanley Williams og íslendingurinn Friðbjörn Björnsson, en þessi þrjú hafa öll gist Island. England. Þorsteinn Hannesson söngvari hefir verið ráSin við Covent Garden söngleikahúsið í London. Þorsteinn hefir undanfarið notið kennslu ihins fræga kennara Joseph Hyslop. Er þetta mikill heiður fyrir hinn unga söngvara, þar eð aðeins úrvals söngvarar komast að þessu aðalleik- húsi Lundúna. 16 MUSICA