Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Musica

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Musica

						Danshljómsveitir 1.

Kctrl Jónatans

og hljómsveit hans

	E * 1								

1 ¦  1		HjT]	^V   -iH			\ ít * ill	* 1	iiSk	^5^^

1*1-%"i				£*j	fsrv				l§§

			v~V&* 1	í iC^w"					

í Kabarett Iþeim, er var foaldinn til ágóða fyrir.

barnaihjálpina söknuðu margir einnar hljómsveitar,

er hefur upp á síðkastið aflað sér mikilla vinsælda,

en það var foljómsveit Karls Jónatans, en við treystum

á að þetta endurta'ki sig ekki, þar sem ekkert álitamál

er, að Karl Jónatans foefur með sínum sérstaka stíl

skapað  sér  nafn  meðal íslenzkra  dansfoljómsveita.

Karl Jóntans er fæddur 24. febr. 1924 og er þvi 24

ára að aldri. Hann fæddist á Blikalóni við Rifstanga,

Norður-Þingeyjarsýslu. 10 ára gamall fékk hann foar-

moniku að gjöf frá föður sínum og varð foún þegar

eftirlætisleikfang hans.

Varð hann brátt eftirsóttur til að leika á skemmt-

unum og er skemmst frá að segja að hann lék á har-

monikuna í 11 ár og varð þekktur um allt land.

En þá kynntist hann saxófóninum og tók að leika

á tenór sax og hefur leikið á hann síðan.

Fyrstu hljómsveit sína stofnaði hann 19 ára að aldri

á Hótel Norðurland og ihann hefur siðan leikið með

hinum og þessum Ihljómsveitum og einnig sjálfur

haft nokkrar, en síðasta sumar kom hann upp þeirri

hljómsveit, er hann hafði lengi óskað sér, og má

segja að Karl hafi haft mikil áhrif á hvern einstakling

innan hljómsveitarinnar, hann hefur kennt þeim öll-

um og yfirleitt unnið mi'kið leiðbeinandastarf, enda

lætur honum það vel.

Hljómsveitina skipa nú:

Karl Jónatans, Tenor sax, stjórnandi.

Karl Adolfsson, clarinett.

Páll Ólafsson, bassi.

Jón Oskar Ásmundsson, píanó.

Arnljótur Sigurðsson, trommur.

Söngkona   með   hljómsveitinni er Lilly Björgvins-

dóttir.

Leikur   hljómsveitin   mikið   Dixieland,   en   það er

uppáhaldsstíll Karls, og er líklegt að hljómsveitin bæti

við sig einum manni, trompetleikara, en ekki er

ákveðið enn hver það verði.

Karl hefur ávallt útsett fyrir hljómsveitina, og sjálf-

um finnst Karli meira gaman að útsetja en að leika á

saxófóninn, auk iþess hefur hann samið nokkur lög,

og hefur 'hljómsveitin leikið tvö þeirra í útvarpið.

Söngkona hljómsveitarinnar, Lilly Björgvinsdóttir,

hefur skemmtilega rödd og með góðri og mikilli

þjálifun mun ekki vera ólíklegt að við fengjum að

heyra sérkennilega söngkonu innan mjög langs tíma.

Með hljómsveitinni rlíkir sérstakur vinarhragur, og

það léttir æfingar slíkrar hljómsveitar mikið, þegar

góður kunningsskapur ríkir milli meðlimanna.

Karl Jónatans á mikla framtíð fyrir sér með hljóm-

sveit sína. Er hann hefur losað sig við hlédrægni sína

mun hann fá lofa að verðleikum.

Eftirlætishljómsveit Karls er Ellington, en litlar

hljómsveitir Goodman sextettinn, Muggsy Spanier

með septett og Harry Parry með sextett, en einleikari

— auðvitað Hawkins.

Ekki væri rétt að skilja svo við hljómsveitina, að

eigi sé minnzt á clarinettleikarann Karl Adolfsson.

Karl er tvímælalaust mikið efni, og ef hann gæti hrist

af sér þann „feimnishjúp", er hvílir yfir honum, má

búast við miklu af honum.

Björn R. Einarsson hafði einmitt lokið við að syngja

Chi Baba — Chi Bafoa, er ung blómarós kom til hans

og bað hann að syngja Chi Baba — Chi Baba.

„Ég var einmitt að ljúka við að syngja það," sagði

Björn undrandi.

„O, bara að ég hefði vitað það," stundi hin fagra,.

„það er nefnilega uppáJhaldslagið mitt."

MUSICA   27

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32