Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Śtvarpsblašiš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Śtvarpsblašiš

						Fylgt úr hlaði

Blaði því, sem hér hefur göngu sína, er fyrst og

fremst ætlað að verða tengiliður útvarps og út-

varpshlustenda. Því er ætlað að kynna helztu dag-

skrárliði Ríkisútvarpsins og einnig að koma á fram-

færi áliti hlustenda og gagnrýni, varðandi dag-

skrána í heild, einstaka dagskrárliði og flutning

þeirra svo og óskum hlustenda og tillögum, varð-

andi útbarpsefni. En auk þess mun blaðið flytja

greinar og fræðslupistla, varðandi tónlist, leiklist

og bókmenntir.

Hvað gagnrýnina snertir, er ekki að búast við

þvt, að hennar gæti í fyrstu tölublöðum „Útvarps-

blaðsins", svo nokkru nemi, þar eð hún verður fijrst

og fremst að koma frá lesendum þess. Að vísu get-

ur ritstjórínn sagt þar sína skoðun, varðandí ein-

stök dagskráratriði, en aðeins sem einn úr hópi

hlustenda, en gagnrýnin getur því aðeins túlkað

skoðanir og viðhorf hlustenda, að nokkur hópur

þeirra segi álit sitt. Og gagnrýnin verður að sama

skapi áreiðanlegri heimild um viðhorf þeirra, sem

sá hópur er fjölmennari.

„Útvarpsblaðið" vill þvi biðja lesendur sína, að

þeir sendi því stuttar greinar eða greinarstúfa, þar

sem rædd séu einstök dagskráratriði og dagskrár-

liðir útvarpsins og flutningur þeirra, með tilliti til

að þær greinar birtist í blaðinu, annaðhvort í heilu

lagi, eða kaflar úr þeim. Ekki, verður þó annað birt,

en það sem berst undirritað fullu nafni sendandans,

en að sjálfsögðu ræður hann hver undirritunin verð-

ur þegar það birtist, og heitir ritstjórinn þagmælsku,

varðandi nafn hans. (Þau önnur skilyrði set-

ur blaðið væntanlegum höfundum slíkra greina, að

þeir láti sanngirni ráða dómum sinum og beiti

gagnrýninni eins og drengjum sæmir.

Og enn eitt, — getið þess, sem ykkur þykir lofs-

vert engu síður en hins, sem þið teljið, að betur hefði

mátt fara. Þeir, sem samið hafa eða flutt gáð dag-

skráratriði, eiga viðurkenningu skilið, engu síður

en hinir aðfinnslurnar, auk þess sem viðurkenn-

ingin getur orðið þeim fyrrnefndu nauðsynleg hvöt

og styrkur. Og gagnrýnin getur heldur ekki orð-

ið áreiðanleg heimild um viðhorf hlustenda eða álit

þeirra á dagskránni í heild, nema þar komi hvort

tveggja í Ijós, — ánægja þeirra og óánægja.

Ritstf.

ÚTVARPSBLADIÐ

Ritstjóri og ábyrgðarmaður

LOFTUR  GUÐMUNDSSON

Afgreiðsla

BÓKABÚÐ MENNINGARSJÓÐS

Hverfisgötu 21 — Reykjavík

Pósthólf 1043 - Sími 80282

Áskriftarverð kr. 55,00 - í lausasölu kr. 3,00

blaðið

Blaðið kemur út hálfsmánaðarlega

Prentað í

PRENTSMIÐJU HAFNARFJARÐAR H. F.

Grmmiiófóii-

plötur

frá His Masters Voice, Colum-

bia,   Parlophone   og   M G M,

jafnaðarlega    fyrirliggjandi    í

miklu úrvali, bæði danzmúsik

og sígild músik.

Nýjar plötur koma venjulega á

mánaðarfresti.

Aðalumboð fyrir His Masters Voice,

FÁLKINN H. F.

UTVARPSBLAÐIÐ

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16