Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Śtvarpsblašiš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Śtvarpsblašiš

						lausavísur tíðkuðust þegar í fornum grískum

og rómverskum skáldskap og sum skáld urðu

miklir meistarar í þessum kveðskap, bæði

í því að beita honum til háðs og ádeilu og

frásagna um daginn og veginn. Slíkur latínu-

kveðskapur tíðkaðist lengi fram eftir öldum,

t. d. orti Holberg margt af þessu tagi, og

það gerðu einnig ýmsir íslenzkir lærdóms-

menn. Þetta var tvíhenda, distikon, áþekk

afhendingu hjá okkur, upphaflega stuttar

áletranir eða ristur, seinna þekktar undir

nafninu „epigram" og voru þeir Simonides

hjá Grikkjum og seinna Martial hjá Róm-

verjum þekktustu skáld þessarar vísnagerð-

a!r. Hallgrímur Pétursson orkti og þýddi

lausavísur í þessa átt og rímaði þær, t. d.:

Old óðum spillist,

uggleysinu dárlega fyllist,

glæpavegurinn gyllist,

girnd holdsins margur aðhyllist.

Seinna orkti Bjarni Thorarensen einnig í

þessum dúr og einkum Steingrímur Thor-

steinsson, en margar lausavísur hans eru

merkilegar af því að þar mætast klassisk og

íslenzk áhrif og áhrif frá Goethe og Schiller,

en eftir þá eru til stór söfn lausavísna. Ég

ætla að taka tvö dæmi eftir Steingrím til að

sýna muninn á þessum erlendu og íslenzku

lausavísum og formi þeirra:

Leikkvöld

Menntaskól-

ans 1951:

Kristján þjónn

Benidikt Árna

son í sjónleikn

um „Við kerta

Ijós" eftir Sig

fried Geyer.

(Ljósm. G.

Þórðarson.)

Lausavísur orktar í svipuðu skyni og að

sínu leyti í svipuðum anda, en ólíkum stíl,

hafa líka tíðkast öldum saman austur í Jap-

an og verið mjög útbreidd íþrótt og kvað

svo vera enn. Einnig hafa Arabar tíðkað

slíka vísnagerð á sína vísu, m. a. hestavísur.

I okkar þjóðlífi og bókmenntum má rekja

lausavísnagerðina aftur í ramma forneskju,

í ýmsum myndum, Sturlunguvísan:

Loftur er í Eyjum

bítur lunda bein,

Sæmundur er á heiðum

og etur sölin ein.

Hjarta mitt stælist við stríð,

þó stenst á hvað vinnst og hvað tapast

það, sem mitt þrek hefur grætt,

það hefur viðkvæmnin misst.

Orður og titlar úrelt þing,

eins og dæmin sanna,

notast oft sem uppfylling

í eyður verðleikanna.

er gamalt dæmi um einfalda lausavísu, að

ekki séu nefndar allar þær dróttkveðnu vís-

ur, sem í sögunum geymast. Seinna komu

svo nýir hættir, einkum ferskeyttir, og urðu

algengastir, og hefur verið kveðið margt

lof um ferskeytluna og verðskuldað.

Eg vona að lausavísnaþátturinn geti orð-

ið góð skemmtun og auk þess þjónað góðu

málefni, því, að efla gamla og merka kveð-

skapargrein og skilning á henni.

12

UTVAKPSBLAÐIS

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16