Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Śtvarpsblašiš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Śtvarpsblašiš

						Héðan og handan

Ársstarf Sinfóníuhljómsveitarinnar.

I byrjun þessa mánaðar var rétt ár liðið síðan Sin-

fóníuhljómsveitin tók til starfa. Starf hennar þetta

timab.il hefir verið mjög margþœtt og merkilegt.

Auk 10 stjálfstæðra tónleika, sem hljómsveitin hef-

ir haldið og nokkurra útvarpstónleika, hefir hún

aðstoðað Tónlistarfélagskórinn við flutning á Jóhann-

esarpassíunni eftir J. S. Bach; einnig aðstoðaði hún

Útvarpskórinn á tónleikum hans, flutti íslenzka tón-

list á Listamannaþingi 1950, og síðast en ekki sízt

hefir hljómsveitin eða hljóðfæraleikarar úr henni

flutt tónleika með leiksýningum Þjóðleikhússins. Má

þar einkum minna á sýningarnar á „Brúðkaupi

Fígarós" eftir Mozart á s.l. vori, en þessi fyrsta

fullkomna óperusýning á íslandi hefði verið nærri

óhugsandi, ef Sinfóníuhljómsveitarinnar hefði ekki

notið við.

A þeim 10 sjálfstæðu tónleikum, sem hljómsveitin

hefir efnt til, hafa alls verið flutt 38 tónverk, lang-

flest í fyrsta skipti hér á landi. Er hér um að ræða

svo stórfellt landnám, að þess munu engin dæmi í

íslenzkri menningarsögu á jafnstuttum tíma. Meðal

þeirra verka, sem flutt hafa verið, má nefna sérstak-

lega þessi, og eru þá aðeins talin veigamestu við-

fangsefnin:

Beethoven: Sinfónía nr. 1 í C-dúr, Sinfónía nr. 3

i Es-dúr (Eroica), Sinfónía nr. 5 í C-moll (Örlagasin-

fónían).

Brahms: Tilbrigði um stef eftir Joseph Haydn,

op. 56a.

Bruch: Fiðlukonsert nr. 1 í g-moll.

Dvorák: Sinfónía nr. 5 í e-moll (Frá nýja heim-

inum).

Haydn: Sinfónía í Es-dúr (Paukenwirbel).

Mendelssohn: Sinfónía nr. 4 í A-dúr, op. 90 (ítalska

sinfónían).

Mozart: Hornkonsert í Es-dúr (K. 495), Sinfónía

í g-moll (K. 550), Sinfónía í Es-dúr (K. 543), Sin-

fónía í D-dúr (K. 504)   Prag-sinfónían).

Prokofieff: „Pétur og úlfurinn", barnasaga með

tónleikum.

Schubert: Sinfónía nr. 8 í h-moll (Ófullgerða

hljómkviðan).

Sibelius: Sinfónía nr. 2 í D-dúr, op. 43.

Tschaikovsky: Sinfónía nr. 4 í f-moll, op. 36.

Þeir, sem íslenzkri menningu unna, munu vera

samhuga í þeirri ósk, að framhald geti orðið á því

merkilega starfi, sem hér er hafið, því að mörg hin

stórfenglegustu meistaraverk tónlistarinnar bíða þess

enn að verða flutt í fyrsta skipti á íslandi. Verður

það starf, sem hin unga sinfóníuhljómsveit hefur

þegar unnið, að teljast merkilegt landnám í hinum

víðlenda heimi tónlistarinnar; heimi, sem okkur er

enn aðeins að litlu leyti kunnur. Og þar bíða henn-

ar enn víðar og óunnar lendur.

læg til þess, að þeir megi njóta hennar. Enda

hefur þessi sjónleikur verið sýndur oft og

víða hér á landi og notið mikilla vinsælda.

Þess væri óskandi, að þessi fiyrstu tvö

hefti í Leikritasafni Menningarsjóðs hlytu

þær viðtökur hjá almenningi, að forráða-

menn hennar sæju sér fært að halda útgáfu-

starfseminni áfram, og framkvæma þá tví-

þættu fyrirætlun sína, að bæta úr tilfinn-

anlegum skorti þeirra, er við leikstarfsemi

fást, á leikhæfum og góðum sjónleikjum,

sem gætu orðið þeim bæði skemmtilegt og

þroskandi viðfangsefni, og veita lestrarfús-

um mönnum tækifæri til að kynnast önd-

vegishöfundum þeirrar skáldskapargrein-

ar fyrir lestur þeirra beztu og skemmtileg-

ustu verka; færa almenningi heim sanninn

um það, að lesandinn getur notið leikritsins

engu síður en áhorfandinn sjónleiksins, og

að það er engu síður göfgandi og þroskandi,

að láta sitt eigið ímyndunarafl setja sjónleik-

inn á svið í sínu eigin leikhúsi, þjóðleik-

húsi hugans, en að njóta þar annarra, þótt

það sé vænlegast til þroska og skilnings, að

hvorttveggja fylgist að.

Loftur Guðmundsson.

UTVARPSBLAÐIÐ

15

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16