Friðfinnur Guðjónsson og Gunnþórunn sem Jón bóndi og kona hans í Fjalla-Eyvindi eftir -Jó- hann Sigurjónsson, en þau hafa leikiH saman oftar en nokkrir aSrir núlifandi leikarar og fáir njóta meiri vinsælda en þau. * Gunnþórunn Halldórsdóttir lék í fyrsta skipti 6. janúar 1895. Það var hlutverkið Sigríður frá Stuðlabergi í sjónleik Indriða Einarssonar, Systkinin í Fremstadal, sem leikfélagið í Breiðfjörðshúsi sýndi. Tveím árum síðar gerðist hún ásamt nokkrum félögum sínum og leikendum frá Leík- félaginu í Góðtemplarahúsinu stofnandi Leikfélags Reykjavíkur, og er hún nú heiðursfélagi þess félags. A fyrstu árum L.R. var hún ein mikilvirkasta leikkona félagsins, lék 38 hlutverk stór og smá, en frá árinu 1905 og til 1930 lék hún mest- 20 útvarpstíðindi megnis utan Leikfélagsins. Á þessum ár- um kom hún fram í velflestum revyum, sem hér voru sýndar, og ávann sér orð sem langfremsta leikkona bæjarins í gam- ansömum hlutverkum. Yngsta kynslóð áhorfenda nú þekkir þó hvorki hina mik- ilvirku blómarós byrjunaráranna né rev- yu-drottningu þriðja áratugs aldarinnar, heldur hina stóríbrotnu skapgerðarleik- konu, jafnvíga á gaman og alvöru, sem kemur fram á leiksviðinu eftir 1930, þeg- ar Gunnþórunn tók aftur til starfa í sínu gamla félagi. Já, á áttræðisaldri kastaði