Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Śtvarpstķšindi : nżr flokkur

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Śtvarpstķšindi : nżr flokkur

						við laganámið, nema kennski síðasta ár-

ið, þá lauk hann þó lagaprófi á til settum

tíma, eftir 6 ár, eða vorið 1886. Sama

sumar hélt hann heim til íslands og nú

hófst embættisferill hans. Fyrstu árin

heima var hann tvisvar settur svslumað-

J

ur, og málaflutningsmannastörfum

gegndi hann einnig við landsyfirréttinn.

En 3. nóv. 1889 var hann skipaður lands-

ritari. Það embætti var þá eins konar

fulltrúa- og skrifstofustjórastarf hjá lands-

höfðingjanum, en landshöfðinginn fór þá

með hið æðsta vald innanlands, undir yf-

irstjórn íslandsráðherrans í Kaupmanna-

höfn.

Landsritarinn hefur því haft aðstöðu

til að kynnast til hlítar öllum greinum

framkvæmdavaldsins og einnig löggjaf-

arstarfinu. Hefur því þetta embætti ver-

ið hinn bezti skóli fyrir ungan mann, sem

örlögin höfðu ætlað að verða æðsti mað-

ur þjóðarinnar á sínum tíma, eins og var

um Hannes Hafstein.

Um sama leyti og hann varð landritari,

eða 15. október 1889, kvongaðist hann

og gekk að eiga Ragnheiði, dóttur Stef-

áns Thordarsen, prests í Vestmannaeyj-

um og konu hans Sigríðar Stephensen

frá Viðey, en hún hafði áður verið mið-

kona Péturs amtmans, föður Hannesar,

en Ragnheiður var alin upp hjá Sigurði

Melsted, forstöðumanni prestaskólans, og

konu hans og var hún kjördóttir þeirra.

Frú Ragnheiður var hin glæsilegasta

kona. Sá ég hana oft í æsku og virtist hún

bera af öðrum konum, svipað og Hannes

bar af öðrum mönnum. Klemens Jónsson,

sem lengi var nánasti samstarfsmaður

Hannesar og þeim hjónum nákunnugur

lýsir hjónabandi þeirra á þessa leið:

„Frú Ragnheiður var ekki einung-

is eiginkona hans í þess orðs bezta

og innilegasta skilníngi, heldur Uka

30  ÚTVABPSTÍÐINDI

hans bezti vínur og jélagi. Þau voru

svo samrýmd og samtaka í öllu, að

ég efast um, að ég hafi nokkurn tíma

þekkt hjón eins samrýmd og þau."

Sjálfur segir Hannes Hafstein í afmæl-

isvísum  til  konu sinnar,  meðal annars:

„Mín ástmev, mín vina, þú lukka míns lífs

sem lofa mér þorðir þér sjálfs til vífs.

Ég undrast það magn, sem í æsku þú ber,

þig elskar og dáir hver vitund í mér.

Hver afltaug, hver neistinn í anda mírtuvn

fær eld sinn og næring í kærleik þínum."

Um þetta leyti fór Hannes Hafstein

fyrst að gefa sig að stjórnmálum. Hann

var fulltrúi á Þingvallafundinum 1888 og

stóð þar á öndverðum meið við alla aðra

fundarmenn, vegna þeirra skoðana, sem

ég áður gat um. Varði hann þessar skoð-

anir sínar af kappi og festu, þó hann

stæði einn, en þó með fullri prúð-

mennsku, að því er samtíma heimildir

votta.

Vegna þessarar afstöðu sinnar, var

hann í sumum blöðum landsins kallaður

„afturhaldsmaður". Hins var síður getið,

að á þessum sama Þingvallafundi, flutti

hann, ásamt tveim öðrum mönnum, til-

lögu um jafnrétti karla og kvenna, að

svo miklu leyti, sem almenn íslenzk lög-

gjöf gat þá ákveðið um slíkt, enda studdi

hann eftir það jafnan réttindi kvenna.

Ut af fyrirlestri, sem Hannes Hafstein

hélt hér í Reykjavík um þessar mundir,

þar sem hann hélt fram ýmsum róttæk-

um skoðunum, kallaði eitt blaðið hann

— sósialista — þ. e. jafnaðarmann og

taldi, að slík stefna ætti ekki erindi til

íslands og væri næsta skaðleg. Hygg ég

að vísu sönnu nær, að kalla Hannes Haf-

sein jafnaðarmann heldur en afturhalds-

mann. En hvorugt var þó rétt. Hann var

frjálslyndur umbótamaður, eins og allt

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40