Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Śtvarpstķšindi : nżr flokkur

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga breidd


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Śtvarpstķšindi : nżr flokkur

						ur marg sannað, að þau gátu ekld, nema

að litlu leyti komið í hans stað, og sízt

þá. Andstæðingar Hannesar Hafsteins

risu upp á móti símamálinu af fádæma

offorsi. Menn voru sendir út um landið

til að safna mótmælaundirskriftum móti

símanum og fólki sagt, að hann mundi

setja landið á hausinn og gera okkur

fjárhagslega háða Dönum. Mótmæla-

fundi var hóað saman hér í Reykjavík

og hann kallaður „bændafundur", þó

Reykvíkingar væru þar auðvitað í marg-

földum meiri hluta. Þar var hrópað „nið-

ur með ráðherrann" og annað eftir því.

Man ég tæplega eftir öðrum eins æsing-

um eins og út af símamálinu. En hvað

sem á gekk, hikaði Hannes Hafstein

hvergi; hann kom símamáhnu í gegn um

þingið 1905, árið eftir var síminn lagður

og líkaði þá held ég flestum vel og öll-

um síðar.

Á hinum fyrri stjórnartíma Hannesar

Hafsteins var lagaskólinn stofnaður

1908, stofnun háskólans undirbúin,

fræðslulögin sett 1907, kennai-askól-

inn stofnaður 1908, nýju fjármagni veitt

til atvinnuveganna og skógrækt hafin.

Margt fleira mætti telja. — Þá var glæsi-

legt framfaratímabil.

Eins og fyrr segir voru flestir Islend-

ingar í fyrstu ánægðir með stjórnarbót-

ina frá 1903. Svo var þó ekki um alla.

Síðasti danski íslandsráðherrann, Albertí,

sem síðar reyndist glæpamaður, hafði

komið því ákvæði inn í stjómarskrána,

að mál íslends skyldu borin upp fyrir

konungi í ríkisráði Dana. Nokkrir menn

risu þegar gegn þessu ákvæði og vildu

ekki Mta ganga að þeim skilmálum. Þeir

voru flestir utan þings og gátu því ekki

rönd við reist í bili. Þessir menn stofn-

uou nýjan stjórnmálaflokk, Landvarnar-

flokkinn. Fór hann fljótlega að bera fram

nýjar kröfum á hendur Dönum; krafðist

hann að ísland yrði frjálst sambandsland

Danmerkur og sumir landvarnarmanna

fóru að tala um fullan skilnað við Dan-

mörku og stofnun lýðveldis.

Landvarnarflokknum jókst fljótlega

fylgi, en þó einkum stefnu hans, því hún

náði fljótt langt inn í raðir beggja hinna

flokkanna. Að lokum tók Valtýingaflokk-

urinn gamli, sem nú kallaði sig Þjóðræð-

isflokk, algerlega upp stefnu Landvarn-

armanna, að því er virtist og runnu þess-

ir 2 flokkar saman í einn flokk: Sjálfstæð-

isflokkinn fyrri. Gerðust nú kröfurnar

um aukið sjálfstæði háværar og var þjóð-

in í raun og veru einhuga um að.krefjast

aukins frelsis, þó menn greindi á um

leiðir.

I sambandi við för alþingismanna til

Danmerkur 1906 og konungskomuna ár-

ið eftir, náðist svo samkomulag um að

skipa nefnd Dana og íslendinga til að

semja um samband landanna. Hannes

Hafstein var í þessari nefnd, ásamt 6

öðrum alþingismönnum. Arangurinn af

starfi hennar var. hið svo kallaða sam-

bandslaga uppkast, sem 6 hinna íslenzku

nefndarmanna, svo og Danir, gengu að,

en Skúli Thoroddsen klauf nefndina og

bar fram tillögur, sem gengu mjög í

sömu átt og sambandslögin frá 1918

urðu, en Danir töldu slíkar tillögur þá

alveg fráleitar.

Samkvæmt „uppkastinu" átti ísland

að vera frjálst sambandsland Danmerk-

ur og með því gengu Danir að vísu lengra

til móts við okkur, en þeir höfðu nokk-

urn tíma áður gert. Þess vegna þótti hin-

um 6 íslenzku nefndarmönnum rétt að

samþykkja það og á það féllst nokkur

hluti þjóðarinnar. Hinir urðu þó mik-

ið fleiri, og þeirra á meðal margir Heima-

stjórnarmenn, sem vildu láta halda til-

ÚTVARPSTÍÐINDI 33

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40