Fyrir sköjnmu flutti Páll Jónsson kennari að Laugum frumsamda smásögu í útvarpið. Harma ég það að slík snilldarsaga skyldi eigi fá hent- ugri tíma í útvarpinu, en hún var lesin að lokn- uni síðari kvöldfréttum. En þá eru að minni hyggju flestir til náða gengir, aðrir en þeir sem sérstökum störfum hafa að gegna, eða þá eru að skemmta sér. Því lít ég svo á að færri hafi hlustað en ella. Fyrir um það bil 12 árum var flutt í útvarp- ihu leikrit, sem mig minnir að heiti Svörtu augun." Það eru vinsamleg tilmæli mín og fleiri manna að leikrit þetta verði tekið til flutnings í útvarpinu m'i í vetur ef fært þvkir. Ég get ekki skilið svo við þessar línur að ég ekki þakki Pétri Péturssyni fyrir þáttinn Sitt af hverju tagi." En hann hefur verið ágætur það sem af er vetri, sem og var í fyrravetur. Vonandi er að hann verði langlífari í landinu en Lög og létt hjal," sem naut vinsælda á sínum tíma. Það er að lokum bón mín' og alls heimilísfólksins, og raunar fleiri, að birt verði nafn og mynd hinnar skagfirzku meyjar, sem tvívegís liefur komið fram við góðan orðstýr í þættinum Sitt af hverju tagi. G. Gunnars- son", Þakka bréfið. Bið þá, sem senda bréf að skrifa helzt ful.lt nafn og heimilisfang, hvort sem það á að birtast eða ekki. Viðvíkjandi síð- ustu óskinni er þess að geta að við stöndum einmitt í samningum við skagfirzku huldukon- una hans Péturs, sem vildi verða engill við Gullna hliðið, um það að fá mynd af henni o^ stutt viðtal, og er ekki vonlaust að það verði í næsta hefti. Okkur er mikið í mun að fá sem flest og bezt bréf frá hlustendum, bæði um það, sem þeim líkar vel í útvarpinu og hitt, sem miður fer að þeírra dómi, einkum þó tillögur um út- varpsefni. Ritslj. NÝR SPAMAÐUR ÉG SIT í skrifstofukompunni minni og er að búa handritin í fyrsta liefti Útvarpstíðinda til prentunar, en ég hef hvílt mig og hlustað á upplestur Thors Vilhjálmssonar. Þetta er einn af yngstu rithöfundunum, en þó vel sprottin grön eftir inynduni að dænia. Ég sé og heyri rfff+ftfSSSSSSSS.'SSSSSSSXifXit HVTT JÓL Danslagatexti frá Hauki Morthens. (WHITE CHRISTMAS) Mig dreymir, um min æsku jól ómana fögru, Heims um ból". Og urn bjöllunnar hljóm og barnana róm sem biðja um hækkundi sól. Mig dreymir, horfna dýrð og ró, dúnmjúkann hvítan fólasnjó og klukknanna ómfagra klið sem að kveikir, von um lif og frið. F. S. (Sungið í Óskastund" Ben. Gröndal) ,VVV///////,VAV//AV/VAW/W fjölda hlustenda brista vandlætingarfull höfuð sín, þegar það fer fyrir ofan garð þeirra og neðan, sem þessi ungi maður er að lesa. En einn og einn greindur alþýðumaður mun segja: Eitt- livað er nú í þessu lijá honum, og bæta svo við með vonlausum saknaðarhreimi, en maður skilur þá ekki, þessa ungu menn, þeir eru svo andskoti háfleygir. En hvernig finnst þér þetta svo sjálfum, spyr ég minn eigin hug. Ég er ekki í neinum vafa um það lengur, að hér er spá- maður imprisinn meðal vor. Enn talar hann þó ekki eins og sá, sem valdið hefur. Enn hefur honum ekki auðnast' að gera myndir sínar eins sterkar og skáldsýn hans er. Kannski tekst honum það aldrei, enda er það fæstra ham- ingja, en nær kemst hann. Nú eigum við íslendingar mörg glæsileg skáldefni við eigum ekki aðeins íþróttamenn en hamingjan má vita hvað verður. /. 38 útvarpstiðindi