Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Śtvarpstķšindi

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Śtvarpstķšindi

						Þið hafið alveg nýlega glatt mig með

fögru samkvæmi, hlýjum orðum, sæmt

mig hrósi, fært mér og konunni minni

fagrar gjafir. Ykkur þakka ég alveg

sérstaklega, þegar vel tekst um samstarf,

svo langt sem hér um ræðir — um þriðj-

ungsskeið verkfærrar ævi — þá verða

slit samvista og samstarfs ávallt bundin

sársauka.

Og hví skyldi mér hrósað og þakkað

en'ykkur gleymt? Hví skyldi ykkur

gleymt, sem hafið unnið nálega allt verk-

ið. Þið og ýmsir, sem farnir eru, hafið

byggt upp heilar starfsdeildir. Þið hafið

með eljusemi ykkar og dugnaði í starfi

gert það fært, að þoka málefnum út-

varpsins og vexti þess til þeirra marka,

þar sem við stöndum í dag. Og þið hald-

ið áfram að starfa þótt ég hverfi úr

hópnum. — Og maður kemur í manns

stað. Ég óska eftirmanni mínum í þessu

starfi, hver sem hann verður, til ham-

ingju. Ég vona og bið þess, að með hon-

um og ykkur megi takast gott samstarf.

Og ég heiti á ykkur að veita honum

samskonar brautargengi og þið hafið

veitt mér. Ég kveð ykkur öll fullviss

um það, að yfir 20 ára samstarf hverf-

ur ekki né glatazt. Það heldur áfram að

vera í lífi okkar sjálfra og í lífi þjóðar-

innar — og það heldur áfram að vaxa.

Og svo að lokum nokkur varnaðarorð

til þjóðarinnar. í dag, við brottför, er ég

mér þess meðvitandi, að hafi ég unnið

nokkurt happaverk í þjónustu Ríkisút-

varpsins, þá var það sú tilhlutun mín,

að fá tekin inn í 5. gr. útvarpslaganna á-

kvæðin um það, að við útvarpið skuli

ríkja skoðanfrelsi og fyllsta óhlut-

drægni gagnvart öllum flokkum og

stefnum í almennum málum, atvinnu-

stofnunum,     félögum     og     einstökum

mönnum. Vegna þessara ákvæða hefir

Ríkisútvarpið getað þjónað sönnu lýð-

ræði. Það hefir getað risið yfir og stað-

ið óháð pólitískri flokkabaráttu. Vegna

þessara ákvæða hefir það getað ástund-

að sannindi og þjcnað óhlutdrægni og

íiönhu réttiæti. Því er almennt treyst, að

útvarpið vilji segja satt cg rétt frá stað-

reyndum. Þess er aimennt krafizt, að

þaS virði og verndi í starfi sínu jafnan

jrét.t allra manna. —

Fyrir því verða þetta mín síðustu

varnaðarorð og eggjan: Standið fast á

verð'i, íslendingar, um þessa helgu

s'kyldu, um þennan helga rétt.

Góða nótt."

Nokkrar erlendar útvarpsstöðvar

Banmörk:     Kalundborg    I     1224     m.    Kaup-

mannahöfn    202    m    (aðeins    kl.    19,15—22).

Stuttbylgjur  49,50  m   (kl.   18,40—22,15).

Svíþjóð:   Falun  245 m.  Hörby 254,7  m.  Gauta-

borg 306,1 m.  Stokkhólmur 388,1  m.

Noregur:   Stavanger  288  m.   Bergen,   Kristian-

sand 337,1  m.  Oslo  1376  m.

Belgía:  Bruxelles 324 m.

England:   General   Overseas   Service   16,99   m,

19,85 m, 25,64 m, 30,53 m. Home Service 434

m, 261 m. Light Programme 1500 m, 247 m.

- Finnland:   Helsingfors   538,6   m.   Lahti   1181   m.

Frakkland: National 249 m, 347 m. París 498 m,

422 m, 379 m.

Holland:   Hilversum   I   402   m.   Hilversum   II

298 m.

ítalía:   Róm 355  m.

Þýzkaland: Bayerische Rundfunk 218 m, 375 m,

48,7  m.  Berlin  Rias  303  m,  439  m.  Bremen

220,6 m.

Sviss: Beromunster 567,1 m.

Austurríki: Vín II 203 m.

Séuð þér ánægður með Útvarpstíðindi, þá

ráðið vinum yðar til að kaupa þau. Séuð þér

óánægður með þau, þá ráðið óvinum yðar til að

kaupa þau. —

8

ÚTVARPSTÍÐINDI

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20