Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Śtvarpstķšindi

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Śtvarpstķšindi

						<s>-

-?

gu&

Hlutverk þessa þáttar hefir frá öndverðu ver-

ið að koma á framfæri skoðunum hlustenda á

starfsemi Ríkisútvarpsins. Hefir að vonum gætt

mikillar fjölbreytni í þeim, allt frá bitrustu

gagnrýni upp í hástemmt lof. — Þó er rétt að

segja hverja sögu eins og hún gengur, að svo

hefir virzt, að hlustendur séu öllu birgari af

bleki, þegar þeim hefir eitthvað þótt miður fara.

En þótt ekki þurfi að fjölyrða um, hve heilbrigð

og hleypidómalaus gagnrýni sé nauðsynleg, þá

virðist að minnsta kosti ekki minni ástæða til

að láta í Ijós velþóknun sína á því, sem vel er

gert, enda verður ekki séð að upplýsingar um

jákvæða afstöðu hlustenda til ákveðins útvarps-

efnis eða útvarpsmanns séu ómerkari hinni nei-

kvæðu. — Frá þessu, nokkuð almenna tómlæti,

eru hinsvegar ánægjulegar undantekningar, t. d.

er íslenzkum hlustendum enn í þakklátu minni

flutningur og efni ákveðinnar útvarpssögu, sem

naut óvenjulega opinskárrar hylli hlustenda, —

nefnir óljúgfrótt fólk hin ótrúlegustu dæmi

þessu til sönnunar svo sem steinhljóð í sauma-

klúbbum, eftirvinna á skrifstofum dæmafá, og

jafnvel stefnumótum aflýst í stórum stíl, o. s.

frv. En þótt því fari víðs fjarri, að hægt sé með

sanni að krefjast svo atkvæðamikilla fórna að

jafnaði ,myndi verðskulduð viðurkenning hlust-

enda, til handa semjendum og flytjendum hins

talaða orðs í útvarpinu, óefað verða öllum aðil-

um til gagns og gleði.

Um spurningaþætti.

Spurningaþættir útvarpsins munu yfirleitt

vera mjög vinsælir af hlustendum. Mun því

svo farið, að aður en hlustendur vita af, eru

þeir sjálfir orðnir þátttakendur, samhryggjend-

ur eða samfagnendur eftir atvikum, en slíkt er

einmitt vottur hins ákjósanlega útvarpsefnis.

Eigi að síður vildi ég benda á, hvort ekki sé

lögð fullmikil áherzla á lærdómsatriði í vali

spurninganna, og þá jafnframt hætta á nokkuð

Au glý sin g

Útvarpið flytur auglýsingar og til-

kynningar til landsmanha með

skjótum og áhrifaríkum hætti.

Þeir, sem reynt hafa, telja útvarps-

auglýsingar áhrifamestar allra aug-

lýsinga.

AUGLÝSINGASKRIFSTOFA

ÚTVARPSINS

Sími 1095.

<$>-

<$>

4>r

-<$>

ENGINN  AHUGASAMUR

ÚTVARPSHLUSTANDI  MÁ  VERA  ÁN

\        ÚTVARPSTÍÐIND A

— Munið atkvæðagreiðsluna. —

<$>-

-4>

tilviljunarkenndum árangri. Ef spurningarnar

hins vegar, sumar að' minnsta kosti, skírskot-

uðu meira til almennrar greindar, skýrleika og

viðbragðsflýtis í hugsun og rökvisi í ályktun-

um, hygg ég að hann yrði jafnvel enn fjölbreytt-

ari og skemmtilegri. — Eins kemur til athugun-

ar að stefna ákveðnum flokkum eða jafnvel

stéttum manna að prófborðinu. — í brezka út-

varpinu er t. d. mjög vinsæll þáttur, sem er

keppnispróf milli ýmissa barnaskóla í Bret-

landi. — Væri ekki ómaksins vert að gera til-

raun með slíkt útvarpsefni hér?

ÚTVARPSTÍÐINDI

17

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20