22 MALMAR A ISLANDI SINDR! tegundir málma verður greinilega vart við hjer á landi í ofan- jarðar steinum. Gerði jeg mjer vonir um, að það gæti orðið, all mikill ljettir fyrir þá, sem síðar kynnu að leita að málm- námum hjer á landi, að vita hvaða málmtegundir finnast hjer. Niðurstaðan fram að þessu er þá sú, að jeg hefi orðið greinilega var við þessa málma, fyrir utan járn og aluminium: Silfur. Kvikasilfur svertu (»stupp« stuf). Koparkís. Blýglansa. Sink (Kísilsink). Kadmium. Vismút. Antimon. Mangan. Öull. Platínumálma. Auk þessa hefi jeg orðið var við ýms önnur efni, svo sem króm, fosforríka steina flór o. fl. Jeg hef unnið að þessu starfi undanfarið á minn eiginn kostnað og undir all-örðugum kringumstæðum. En 2 síðustu árin hefir aðstaðan verið nokkuð betri, þar sem jeg hefi get- að unnið að rannsóknum mínum að mestu leyti á rannsókn- arstofu ríkisins. Við steinaleitina hefi jeg notið mikilsverðrar aðstoðar herra Ólafs Eiríkssonar á Hvalnesi, sem hefir stutt mig með ósleiti- legum vilja og dugnaði. Og svo hefir herra Dr. Helgi Pjetursson gefið mjer mikils- verðar bendingar um, hvar helst væri líklegt að leita að málmum, og í hvaða bergtegundum, sem jeg minnist hjer með þakklæti. Revkjavík í september 1920. B]0RN KRIST]ÁNSSON.