42 MUNKTELLS-MOTORAR SINDRI HITA-NOTAGILDIÐ. Sje gert ráð fyrir að aflfræðilegt ígildi hitaein- ingarinnar sje 425 kgm., sem stofan ávalt hefir notað við út- reikninga, og hestaflsstund samsvari þá samkvæmt þessu 635.3 h.e.,1 fást útkomur þær, sem tilfærðar eru í töflunni hjer á eftir. Án vatns- Með vatns- innspýtingar innspýtingu Virk hestöfl, venjul. áhleðsla........ 30.87 31.54 Eldsneyti, kg á hverja h.a.2 stund..... 0.278 0.253 ' Virkt hitagildi eldsneytisins, h.e....... 10390 10390 Hitaeyðsla á h.a. stund, h.e......... 2888 2629 Hita-notagildi, reiknað eftir því, °/o . . . . 22.0 24.2 Tölur þessar sýna, að hita-notagildi bátamótors Munktells er mjög hátt í samanburði við aðra mótora, er stofan hefir reynt. HIRÐING 0. FL. Að »gangsetja« mótorinn var mjög auðvelt og gæsla hans var mjög hæg, gangurinn jafn og rólegur. I 50 mínútur, sem mótorinn gekk tómur, án lampa og vatnsinnspýtingar, gekk hann ólastanlega, eins eftir að hann fjekk fulla hleðslu. DOMUR NEFNDARINNAR. 30 hestafla bátamótor Munktells er vel gerð og smíðuð tví- gengisvjel, ábyggileg í rekstri og auðgætt, með kúlulegum. Brenslan er mjög góð, jafnvel við litla áhleðslu og eldsneytis- eyðslan sýnilega lítil. Mótorinn þolir töluverða yfirhleðslu. Gangurinn er jafn og þýður. 1 h.e. hitaeing(ar). 2 h.a. = heslafl.