48 INNLENDUR IÐNAÐUR sindri töldu fyrirtækja alls 51 tegund. Eins og myndirnar á bls. 46 sýna, var öllu einkar haganlega fyrir komið á sýningu þessari og var hún forgöngumönnunum til mesta sóma. Sýningar eins og þessi eru mjög algengar erlendis og bera oft mjög góðan árangur. Þær vekja eftirtekt á iðnaðinum og greiða þar með fyrir sölu á honum. Kaupsýslumenn sækja þær jafnan og gera þar innkaup sín. Vonandi verða fleiri slíkar sýningar haldnar hjer á næstunni. Milli myndanna frá sýningunni eru myndir af bræðrunum, Sigurjón vinstra megin og Einar hægra megin. NVTT TIMARIT. Radio-Electricité París. Tímarit þetta, sem er um loft- skeytafræði, hóf göngu sína í júnímánuði síðastliðnum og hefir I. F. I. verið sent fyrsta hefti þess. Er það málgagn fjelags þess er gefur það út: »La Société de Publications Radio- Techniques«, og er tilgangur þess, eins og nafnið bendir til, sá, að útbreiða þekkingu á fræðum þéssum. Helstu ritgerðir í fyrsta heftinu eru: »Grafisk« kenning »Audion« lampanna og útreikningur sveiflananna. Neðanjarðar loftskeytastöð í París (Trocadéro-stöðin). Þrískautalamparnir í loftskeytafræðinni o. fl. Ritið kemur út mánaðarlega, 62 + 14 bls. og kostar árgangurinn 36 franka með burðargjaldi. Pappír og allur frá- gangur hinn vandaðasti.