Skýrsla yfir Samskotas.jóo Vjelstjórafjelags Islands. Eins og öllum meðlimum fjelags vors má vera Ijóst, var sú stefna tekin í fjelagi voru, að styrkja eftir mætti þá, sem við fráfall meðlima vorra mistu fyrirvinnu sína og stóðu eftir meira og minna varn- arlausir í lífinu. Var styrktarsjóði vorum ætlað að mestu þetta hlutverk og því var lagður til hans svo drjúgur skerfur árlega. En það kom brátt í ljós, að þarfirnar jukust meir og skjótar en sjóðurinn, svo að hann var eigi fær um að uppfylla þær, með þeim takmörkum sém honum voru sett. Kom þetta fyrst í ljós, er börn Sigurbjarna heit- ins urðu munaðarlaus og voru tekin á arma vora. Myndaðist þá annar sjóður, barnasjóðurinn, sem tók að sjer það hlutverk, að fylla í skarð það, sem styrkt- arsjóðurinn megnaði ekki að fylla í. Tókust samskot- in svo vel, að fyllilega var bætt úr. Við fráfall fjelaga vors, Valdimars Árnasonar, fjekk fjelagið alveg nýtt verkefni, sem var að bjarga eignum dánarbúsins frá fjárnámi, og tryggja með því eftirlifendunum sæmilega framtíð, eftir því sem ástæður voru til. Vjer, sem fenigum mál þetta í hend- ur, litum svo á, að lög styrktarsjóðsins heimiluðu