Grerðardónrur í málinu: Meirihluti samningsnefndar frá 1921 gegn stjórn Vjelstjórafjelags íslands. Þegar samningar Vjelstjórafjelagsins við Fjelag íslenskra botnvörpuskipaeigenda var útrunninn 1. okt. 1921, hófust samningsumleitanir fyrir tilmæli F. I. B. Var formaður Vjelstjórafjelagsins við samn- ingsumleitanirnar fyrir hönd þess. Sat hann fundi með samningsnefnd útgerðarmanna í hvert sinn, er hann var í bænum, fram í nóvembermánuð, án þess að samkomulag næðist. Skömmu seinna var samþykt á fundi að skipa 5 manna nefnd til að semja við útgerðarmenn, og skyldi formaður fjelagsins vera formaður hennar. Fer nefndin síðan á fund utgerðarmanna til að ræða samningana, og tekur með sjer varaformann í stað formanns, sem ekki var heima. UndiiTÍtaði nefndin samningana skömmu síðar. Máli þessu lýsir formaður í ársskýrslu sinni þannig: Samningur við F. 1. B. Samningum 1921 er hald- ið óbreyttum til 1. október, þrátt fyrir marg- ítrekaðar tilraunir frá útgerðarfjelagsins hálfu, að fá þeim breytt oss í óhag. I október takast umræður um samningana fyrir árið 1922. Átti fjelagið í hörð-