Morgunblaðið - 20.12.2008, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.12.2008, Blaðsíða 1
LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2008 íþróttir Á toppnum Framarar unnu nauman sigur á Víkingi í síðasta leik N1-deildarinnar á þessu ári. Sigurinn nægði hins vegar til þess að tryggja Fram efsta sæti deildarinnar 2 Íþróttir mbl.is FIFA hefur stað- fest dómaralista dómaranefndar KSÍ. Á listanum eru tveir nýir að- stoðardómarar, þau Frosti Viðar Gunnarsson og Bryndís Sigurð- ardóttir, en Bryndís er fyrsta íslenska konan sem kemst á listann. Tveir aðstoðardómarar fara af listanum; Einar Sigurðsson og Gunnar Gylfason. Einar sökum ald- urs en Gunnar er hættur. Á listan- um eru: Garðar Örn Hinriksson, Jó- hannes Valgeirsson, Kristinn Jakobsson, Magnús Þórisson. Að- stoðardómarar: Áskell Þór Gísla- son, Bryndís, Frosti Viðar, Jóhann G. Guðmundsson, Oddbergur Ei- ríksson, Ólafur Ingvar Guðfinnsson og Sigurður Óli Þorleifsson. Bryndís fyrst á FIFA-lista Bryndís Sigurðardóttir VEIGAR Páll Gunnarsson skrifaði í gær undir samning við franska knattspyrnuliðið Nancy. Samn- ingurinn er til þriggja og hálfs árs en frá hon- um var formlega gengið eftir að Veigar Páll stóðst læknisskoðun hjá félaginu. Samningur Veigars tekur gildi hinn 1. janúar næstkomandi. Veig- ar hyggst ljúka leyfi sínu á Flórída áður en hann flytur sig frá Noregi til Frakklands. iben@mbl.is Veigar Páll skrifaði undir Veigar Páll Gunnarsson AP Tilþrif Það gengur oft mikið á þegar bestu skíðamenn heims takast á við skíðabrekkurnar á heimsbikarmótum í alpagreinum. Slóveninn Alex Glebov lenti í töluverðum vandræðum í risasviginu í gær í Val Gardena á Ítalíu en tilþrifin voru flott, þrátt fyrir að Glebov hafi ekki lokið keppni. „ÞETTA er svona jólamót sem þeir halda og liðið sem sér um mótið bauð mér að koma og spila með því,“ sagði Haukur Pálsson, körfuknattleiksmaður úr Fjölni, í samtali við Morgunblaðið í gær. Haukur fer á milli hátíðanna til Rómar á Ítalíu þar sem hann leik- ur með heimamönnum í svokall- aðri Junior Euroleague. Þar mæta liðin sem keppa í Euroleague með unglingalið sín og var Hauki boðið að leika með Stella Azzurra frá Róm, sem sér um mótið að þessu sinni. „Það var Ítali sem sá mig á Evrópumótinu og hann hafði sam- band og bauðmér síðan að koma og spila með þeim í þessu móti,“ sagði Haukur. Hann fer út annan í jólum. „Ég fer út annan í jólum, síðan er spilað 27., 28. og 29. og síðan kem ég heim 30. desember,“ sagði Haukur sem hefur vakið athygli víða enda þar á ferðinni einn allra efnilegasti leikmaður landsins. Á Evrópumótinu hjá 16 ára og yngri í sumar var hann með 20,1 stig að meðaltali í leik, tók 11,2 fráköst, stal 2,7 boltum að með- altali og varði 1,1 skot. Haukur er sextán ára síðan í maí, 196 sentimetra bakvörður sem hefur gert 8,7 stig að með- altali með Fjölni í 1. deildinni í ár. Keppnisfyrirkomulag mótsins er með þeim hætti að leikið er í fjór- um þriggja liða riðlum. Haukur og liðsfélagar hans leika með Alba Berlín frá Þýskalandi og Zalgiris Kaunas frá Litháen í c-riðli keppninnar. Mörg af sterkustu liðum Evrópu senda unglingalið sín á þetta mót. Má þar nefna ítalska meistaraliðið Montepaschi Siena sem sigraði Jón Arnór Stefánsson og félaga hans úr Lottomatica Roma í úr- slitum ítölsku deildarinnar í júní. Virtus Bologna, Benetton Bas- ket, Cibona Zagreb og Union Olimpija eru með lið á mótinu í Róm. skuli@mbl.is Stórlið sýna Hauki áhuga Góður Haukur Pálsson úr Fjölni.  Unglingalandsliðsmaðurinn Haukur Pálsson leikur með Stella Azzurra  Fjölnismaðurinn sýnir hvað í honum býr á Evrópumóti sem fram fer í Róm EFTIR sigur Fram á Víkingi í N1 deild karla í handknattleik í gærkvöldi er ljóst að læri- sveinar Viggós Sigurðssonar hjá Fram mæta HK í deildabik- arkeppni N1 og HSÍ sem fram fer 27. og 28. desem- ber í Laugardalshöll. Í hinum leik undanúrslitanna leiða leikmenn Vals og Íslandsmeistara Hauka saman hesta sína. Sigurliðin úr þessum viðureignum tveimur mæt- ast síðan í úrslitaleik. Fram hefur titil að verja í þessari keppni en það lagði Hauka í úrslitaleik deildabik- arsins í fyrra. Hjá konunum mætast Haukar og Fram annars vegar og Stjarnan og Valur hins vegar. iben@mbl.is Fram og HK mætast Viggó Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.