Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Pöntunarfélagsblašiš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Pöntunarfélagsblašiš

						Pöntunarfélagsblaðið

ekki kveðin niður nema með

máttugri gagnárás. Gegn sölu-

banni heildsalanna verður

verkalýðurinn að stilla kaup-

banni á þær vörur, sem þessir

heildsalar hafa á boðstólnum.

Hjer verða allir verkamenn að

að greiða stærsta höggið að

skoðunar sem þeir annars eru.

Það er skylda þeirra, jafnt

gagnvart sjálfum þeim sem

stétt þeirra.

Pöntunarfélag

Verkamanna

í Reykjavík.

Þróun   þess   að   vöxtur.

Það er liðið rétt hálft annað

ár síðan við, nokkrir verka-

menn í Skerjafirði, komum

saman á fund, til þess að ræða

um pöntunarfélagsstofnun sem

eina færa leið til þess að kom-

ast að betri og ódýrari kaupum

á lífsnauðsynjum okkar. Með

þessum fámenna fundi var

fyrsta sporið stigið til að stofna

þau neytendasamtök verka-

manna hjer í Rvík, sem nú bera

nafhið Pöntunarfélag verka-

manna í Reykjavík. Á þessum

fyrsta fundi var kosin nefnd til

að gera uppkast að lögum og

athuga allar a'ðrar aðstæður

fyrir starfsemi slíkra samtaka.

Stuttu síðar var reglulegur

stofnfundur haldinn, lög sam-

þykkt og kosin stjórn og pönt-

unarstjóri. Byrjaði félagið starf-

semi sína 1. okt. árið 1933, með

ca. 20 meðlimum. En verka-

menn sáu hér eins og víða ann-

sameinast, hverrar pólitískrar

ars staðar, hve samtökin hafa

mikla efnahagslega þýðingu

fyrir þá, og eftir rúmlega

þriggja mána'ða starf hafði

meðlimatala aukizt upp í 65.

En við þurftum ekki lengi

því láni að fagna, að þessi

ungu samtök okkar fengju að

þróast í friði, því a'ð menn þeir,

sem lifa á því að selja okkur

verkamönnum lífsnauðsynjar

okkar   við   uppskrúfuðu   okur-

verði, sáu, að með neytenda-

samtökum verkamanna var

feitum bita kippt burt úr aski

þeirra. Þessir menn risu upp á

afturfótum með allri sinni

„makt" og settu sín stéttarsam-

tök til höfuðs samtökum okkar

verkamanna í þeim tilgangi að

jafna þau við jorðu. Síðan á

fyrra árshelmingi síðasta árs

hefir ekki linnt á ofsóknum

stórkaupmannastéttarinnar hér

í Reykjavík gegn pöntunarfé-

lagsstarfseminni, en þrátt fyrir

það hafa neytendasamtök

verkalýðsins vaxið og styrkzt

með hverjum degi, og nú eru

þau orðin svo öflug, að þau

geta fullkomlega boðið óvinum

sínum byrgin og sigrað þá.

Á s.l. hausti var það, a'ð öll

pöntunarfélög í Reykjavík

stofnuðu eitt allsherjar sam-

band með sér, til að annast

innkaup á vörum, og hefir það

gefizt ágætlega og orðið til

mikilla hagsmuna fyrir alla fé-

lagsmenn, en nú er líka verið

að greiða stæsrta höggið að

Pöntunafélagi vekamanna me'ð

því, að stórkaupmenn og félag

þeirra hér í Reykjavík hafa

sett viðskiptabann á Pöntunar-

félag verkamanna og reyna þar

með að hefta starfsemi þess til

óbætanlegs tjóns fyrir alla fé-

lagsmenn. Þessari ósvífnu árás

verða /allir pöntunarfélags-

meðlimir að svara með öflugri

gagnárás, sem er í því fólgin

að vinna að því að verkamenn

gangi í Pöntunarfélag Verka-

manna og snúa algerlega baki

við stórkaupmannaokrinu, en

verzla við sín eigin samtök, því

þau eru nú þegar orðin þrösk-

uldur í vegi fyrir ótakmörkuðu

okri stórkaupmanlna á lífsnauð-

synjum verkalýðsins.

Lifi     sameining     og     samtök

verkalýðsins!

Sigurvin  össurarson.

Ábyrgðarmaður:   Jens  Figved.

Útg.: Pöntunarfél. verkamanna.

Isafoldarprentsmiðja h.f.

FYRIRSPURN.

Eins og öllum er kunnugt,

hefir pöntunarfélagið ekki lán-

að vörur, enda þótt félagsmönn-

um hafi legið mikið á. Þegar

maður hefir litla atvinnu fyrri

part vetrar og getur ekki keypt

gegn staðgreiðslu, verður maður

að fara til kaupmanna og fá lán-

að. Þetta finnst mér vera galli

á starfi félagsins, og vil ég þess.

vegna spyrja stjórnendur félags-

ins, hvort ekki væri hægt að

gera þetta einhvern tíma úr

árinu.

Atvinnulaus félagsmaður..

SVAR.

Það skal fúslega viðurkennt,.

að það er galli á starfi félagsins,,

að það skuli ekki   koma   þeim

allra fátækustu nema að litlum.

notum, en svo verður á meðan

þeir   verða   að   faca   til   kaup-

manna   og   kaupa   vörur   upp-

sprengdu verði, einungis vegna.

þess, að þeir verða að fá lán erf-

iðustu mánuði ársins. En blaðið

vill   benda   félagsmanni   þeim,

sem spyr, á það, að ef félagið-

fer að reka lánsverzlun, þá verð-

ur að leggja sérstaklega á vör-

una fyrir því, sem tapast af lán-

unum, og ennfremur fyrir aukn-

um  kostnaði,  og þannig  verða.

þeir, sem borga vörur sínar um

leið og þeir koma með pantanir,.

að borga fyrir hina. Lánsverzl-

un er því   alls   ekki   viðunandi.

lausn á málinu. Hitt er annaði

mál,   að   það   er   tvímælalaust

skylda hins opinbera að sjá öll-

um fyrir atvinnu,   sem   vinnu-

lausir eru. Blaðið beinir því þess

vegna til spyrjandans, að íhuga

þetta betur og bendir honum um

leið    á,   að   það   er   starfssvið

verkalýðsfélaganna   að   berjast

fyrir því, að allir hafi næga at-

vinnu og að það er vafalaus vilji

allra, sem í pöntunarfélögunum

eru, að styrkja verkalýðsfélög-

in í þeirri baráttu eftir megni,

svo að þeir, sem atvinnuláusir

eru, þurfi ekki að sæta afarkost-

um hjá kaupmönnum.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4