Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Birtir aš degi

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Birtir aš degi

						BLAÐ NEMENDAFÉLAGS IÐNSKÖLANS

Frá félagslífinu

Ég vil lauslega :fara nokkrum orðum um stofnun

Nemendafélags Iðnskólans og helztum tildrögum þess.

Það er eflaust öllum kunnugt, hvernig fór með síð-

asta aðalfund Málfundaíélagsins. Þar héldu þeir

menn velli, s.em áður fóru^ með stjórn félagsins, en

margir telja að þar hafi verið svik í tafli, en hér

skal enginn dómur á þáð lagður. E'n það er víst, að

kosningasvik er ekkert nýtt fyrirbrigði hér í Iðnskól-

anum. Á undanförnum árum, hefir það verið sígild

regla, hjá þeim sem farið hafa með stjórn félags-

insi, að beita svikum, þegar þeim hefir þótt það henta,

og hefir það gengið lengra þar, en þekkist meðal nem-

enda í öðrum skólum. Maður skyldi nú ætla að þess-

ir menn, sem hafa svona mikinn áhuga fyrir því að

fara með stjórn félagsins, sýnclu einnig áhuga fyrir

því, að efla samstarf meðal nemendanna, en því fer

fjarri. Þeirra markmið hefir verið að sundra sem

mest nemendunum, og ala á óvild meðal nemendanna

í þeim tilgangi, að sporna við að nokkurt lélagslíf

gæti skapast meðal þeirra. Þetta hefir þeim tekist

að nokkuru leyti, og má benda á mörg dæmi því

til sönnunar. Þeir hafa reynt að innræta þá skoðun

hjá nemendum að varhugayert væri fyrir þá að um-

gangast aðra en þá, sem væru sömu skoðunar á stjórn-

málum og þeir sjálfir. Þetta hafa þeir gert vegna

þessi að þeir voru hræddir um að missa tökin á þeim

nemendum, sem þeir hafa með sínu fagurgali um

dyggðir sínar, vélað iil fylgis við sig. En, eins og vér

vitum, eru margt af þessu óhafðnaðir unglingar, sem

myndu hverfa frá villu síns vegar, ef þeir fengju rétt-

ar upplýsingar og fengju að ihuga málið í næði.

Það var ekki að heyra á, fundargerð þeirri, sem

lesin var upp á þessum merka fundi, að alltaf væru

mætt fjölmenni á fundum félagsins. Mig minnir ekki

betur en greidd hafi verið atkvæði um tillögu og 14

hafi verið með en 8 á móti. Það gerir 22. Þið munuð

kannske spyrja hvernig stóð á því að mættir voru

milli 80 og 90 nemendur á síðasta aðalfundi. Skýr-

ingin liggur í því, að á undanförnum árum hefir

það verið venja þeirra manna, sem hafa haft áhuga

fyrir því, að koma á heilbrigðara félagslííi í félaginu,

en verið hefir, að safna, á aðalfund nemendum meó

sivirpaðar skoðanir og þeir. En það er engu líkara,

en að margir nemendur hafi verið hræddir að sýna

í verki, að þeir vildu heilbrigðari stjórn á félaginu,

og hefir því verið erfitt að ná þeim saman. En samt

hefir oft tekist að f'á nokkuð marga nemendur til aó

mæta, og hafa þá hinir óþjóðlegu þurft að tefla fram

öllum sínum mönnum, og hafa enn sem komið er

hangið við völd í félaginu. Svo þegar þeir hafa verið

búnir að tryggja sér stjórn félagsins, hefir þeim

fundist heppilegast, að sem fæstir mættu á fund-

um, til þess að þeir í næði gætu gert sínar ályktanir,

og getum við séð að hverju þeir hafa stefnt, ef við

athugum, hvað hefir gerst hjá þeim.

Hvað er að segja uni: það,, svo tekið sé dæmi, að

þeir hafa veitt fé úr félagssjóði til »pólitísks« félags,

og hafa með því þótzt vera að vinna að málefnum

nemenda, en þar hafa þeir gjört hið gagnstæöa. Ekki

hefir starf félagsins þó verið að öllu leyti einskis

virði fyrir nemendur. Fyrir atbeina þess, hefir að-

búnaður nemenda í skólanum,' Verið bættur að nokk-

uru, en það hefði mátt gera miklu meira, ef betra

Sfl.mstarf hefði verið meðal nemenda. Margir nem-

endur hafa haft góðar hugmyndir um ýms mál, er

varða hagsmuni nemenda, en sagt sem svo, það þýð-

ir ekkert að fara á, fundi hjá Málfundafélaginu, til

að reyna með aðstoð þessi að koma þessu í fram-

kvæmd. Maður kemst ekki að með sín áhugamál. Þar

eru það 2—3 menn sem rífast um stjórnmál allan

fundartímann, en aðrir verða að hlusta á, hvort sem

þeim líkar betur eða ver. Þannig hefir starfsemi fé-

lagains verið á undanförnum árum, og hefi ég ekki

getað komið auga á, að þetta væri nokkuð að breyt-

ast, þó sumir vilji halda því fram, og benda á það,

því til sönnunar, að nú séu sjálfstæðismenn með þeim

rauðu í stjórn félagsins. Mér finnst það engin sönn-

un fyrir því, að það sé að skapast heilbrigðara í'élags-

líf, þó að menn sem kalla sig sjálfstæðismenn eða

eitíhvað annað, lúti vilja þeirra í félaginu.

Það hlógu sumir, þegar þeir heyrðu að nokkrir nem-

endur hefðu tekið sig saman um að stofna nýtt fé-

lag. En það var ekki frítt við að brosið stirðnaði á,

vörum þeirra, þegar íréttist um hve almenn þátttaka

nemenda var í stofnun félagsins. Þá sást, það bezt

hve nemendur eru fráhverfir hinum óþjóðlegu öfl-

um skólans. Stjórn Málfundafélagsins ætlaði að

bregða skjótt við og fá félagið bannað og voru vissir

um, að það væri ekki erfitt, en það fór á annan veg.

Félagið er að öllu leyti lögmætt, talandi túk'n þess,

er Koma ,skal. Þeir menn, sem mest eru á móti fé-

laginu, eru þeir menn, sem með sínum gerðum í Mál-

fundafélaginu hafa orðið þess valdandi, að félag þetta

var stofnað. Ef Málfundafélagið hefði starfað á heil-

brigðum grundvelli, til gagns og gæfu fyrir nemend-

ur, hefðu allir nemendur reynt að hlynna að því, eins

og þeir hefðu getað, og hefði þá mikið áunnist, fyrir

atbeina þess,. En það þýðir ekki að tala um það sem

orðið er. Málfundafélagið hefir orðið fyrir þeirri

ógæfu að lenda í klóm grunnhygginna manna, og spá

margir að það sé búið að renna sitt æfiskeið.

Tilgangur Nemendafélags Iðnskólans er að safna

sarhan öllum nemendum skólans, sem hafa áhuga

fyrir bættu félagslífi. Félagið starfar sem; hagsmuna-

fléag fyrir nemendur og einnig sem fræðslu- og

skemmtifélag. Félagið hefir nú þegar hafið starf-

esmi sína með fullum kraftí. Það hefir tryggt sér

húsnæði fyrir skemmtanir  sínar, og má taka það

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4