I. ARGANGUR. rklavarnablaði Útgefandi: Félagið Sjálfsvörn" Kristneshæli, deild úr S. í. B. S. 1. tbl. Jóhann J. E. Kuld: Samband Islenzkra Berklasjúkl- inga og tilgangur þess. Vorið 1938 var orðinn ríkjandi almennur áhugi meðal sjúklinga hér á Kristneshæli fyrir því, að fá í gegn ýmsar réttarbætur til handa berklasjúklingum almennt, og jþá sérstaklega þeim sjúkling- um, er útskrifast af hælunum en hafa ekki nauðsynleg skilyrði til - þess að geta haldið þeirri heilsu, sem náðst hefir, oft með langri hælisvist. Þetta varð svo til þess, að þriggja manna nefnd var kosin hér á almennum fundi meðal sjúklitiga, sem skyldi vinna að úr- bótum í þessu máli. 23. maí um vorið átti svo þessi nefnd langt viðtal við landlækni um þessi mái. Hann viðurkenndi, að ýmsu væri enn ábótavant í berklavarnármálunum hér á landi, en taldi jafnframt eðliiegast, að tillögur til úrbóta kæmu frá berklasjúklmgunum sjálfum. 13. júní skrifaði svo nefndin bréf til sjúklinga á berklahælunum sunn- anlands, þar sem túlkað var við- horf sjúklmganna hér til þessara mála. í þessu bréfi var gerð til- laga um stofnun landssambands berklasjúklinga. Fékk hún ein- róma fylgi meðal sjúklinga á hæl- unum sunnanlands, enda kom það skýrt fram í bréfum frá þeim, að þeir höfðu sama viðhorf til þess- ara mála og við. Sjúklingar á Víf- ilsstöðum höfðu áður en þeir fengu bréf okkar, leitað til heil- brigðimálaráðherra tvívegis og farið fram á það, að öryggi út- skrifaðra berklasjúklinga yrði bet- ur tryggt en nú er. Þegar hér var komið, var kosin allsherjarnefnd á hælunum sunnanlands, er hafði með höndum undirbúning undir stofnun sambandsins, í samstarfi við nefndina hér. Stofnþing Sambands íslenzMa Berklasjúklinga var svo haldið að Vífilsstöðum dagana 23.-24. okt. síðastl. og mættu þar fulltrúar frá sjúklingum á öllum hælunum. Á þessu þingi voru samþykkt lög og stefnuskrá fyrir sambandið, og ýmsar aðrar ráðstafanir gerðar. Nú eru starfandi inhan sambands- ins félög sjúklinga á öllum hælun- um og auk þess félög í Reykjavík, Vestmannaeyjum og víðar. Á þessu ári munu svo verða stofnuð enn fleiri félög, sem deildir í sambandinu. Tilgangur S. í. B. S., sem er skammstöfun á nafni sam- bandsins, er að vinna að því, að komið sé upp svo öruggum berklavörnum, sem heilbrigði- þekking á hverjum tíma krefst og hagur þjóðarinnar leyfir. Að al* menn fræðsla um þessi mil verði stórum aukin frá því sem nú er, að sett verði lög er tryggi öryggi útskrifaðra berklasjúklinga, þann- ig, að þeim verði hjálpað til að komast að léttum störfum við þeirra hæfi, bæði hjá ríki, bæjar- og sveitarfélögum og svo hjá ein- staklingsfyrirtækjum. Að núgildandi berklalöggjöf verði breytt þannig, að rxkið greiði allan beinan sjúkrakostnað, en hið svonefnda krónugjald falli niður. í sem f æstum orðum sagt, er til- gangur S. í. B. S. sá, að vinna öll- um þeim málum sem mest og bezt gagn, er miða að auknum og full- komnari berklavörnum. Og í þeirri baráttu vill sambandið nú leggja höfuðáherzluna á það, að fá tryggða fjárhagslega lífsaf- komu sjúklinganna, eftir að þeir útskrifast af hæiunum, fyrst og fremst með atvinnu við þeirra hæfi og í versta tilfelli með bein- um styrkjum úr ríkissjóði. Á meðan berklavarnarstarfi ríkisins er ekki beint inn á þessa braut, þá sjá allir, sem einhvert skyn bera á þessi mál, að berklavarn- irnar hljóta alltaf að verða kák að meira eða minna leyti. Sambandið telur það eina af sínum brýnustu skyldum, að taka höndum saman við læknastétt og heilbrigðistjórn landsins í baráttu og starfi fyrlr því, að þessum málum verði kom- ið á öruggan grundvöll. Berkla- sjúklingar, hvar sem þið búið á landinu, myndið ný sambandsfé- lög þar sem þau eru ekki enn stofnuð. Sameiginlegt átak allra velunnara þessa máls þýðir sigur. Jónas Rafnar: Eftir hælisvistina. Það hefir verið og er enn næsta algengt, að berklasjúklingar eru tregir til þess að taka sér hælis- vist, og vandamenn þeirra taka stundum í sama strenginn. Þeim finnast líkindin fyrir afturkomu frá hælunum vera svo lítil, að þessi ráðstöfun stappi næst dauða- dómi. Þetta er þó ástæðulítið, því að mikill meirihluti sjúklinganna fær þann bata, að þeir koma aft- ur heim allhressir. Má gera ráð fyrir, að 4/5 til 9/10 komi aftur, en tölur þessar fara aðallega eftir því, hvort hælin eru aðeins ætluð batavænlegum sjúklingum eða jafnframt ætlað að vera almennir berklaspítalar. Þegar litið er á þetta atriði eitt, verður því ekki sagt, að horfurnar séu óvænlegar. Flestum sjúklingum leiðist í hælunum og verða þeirri stundu fegnastir, er þeir sleppa þaðan. Það er von að svo sé. Þar er hver dagurinn öðrum líkur, lækninga- tilraunir fáar, sífelldar reglur að rækja um göngur og legur, bat- inn seinn á sér, og enginn kann að segja, hvenær lausnardagurinn muni renna upp. Að vonum hugsa vandamenn sjuklingsins líkt og hann sjálfur. En þrátt fyrir alla annmarka hælisvistarinnar, er það þó ekki ofsagt, að þegar henni sleppir, er mikill vandi lagður á herðar sjúklingnum sjálfum, vandamönnum hans og þjóðfélag- inu. Þessir þrír aðiljar verða þá að taka höndum saman og gæta þess, sem unnið er, því að annars fer oft og tíðum svo, að fenginn bati fer forgörðum og tímaf fyrirhöfn. og fé er á glæ kastað. Mönnum er þetta efni yfirleitt ekM eins ljost og það þyrfti og ætti að vera, og þess vegna verður farið um það nokkrum orðum. Sumum sjúklingum hættir til þess að telja sig miklu hraustarí en þeir eru í raun og veru, þegar þeir fara af hælinu. Það er jafn- vel ekkert einsdæmi, að sjúkling- ur segi sem svo, að þegar hann sé sloppinn af hælinu, skuli hann víst ekki vera að draga af sér, því að öll varasemi sé gagnslaus. En breyti hann eftir þessari reglu, þá á hann meira á hættu en hann gerir sér grein fyrir. Það er svo sem auðvitað, að það er þreytandi að þurfa að gæta varasemi mán- uðum og jafnvel árum saman, ganga sig ekki móðan, reyna ekki svo á sig, að hjartsláttur komi, hafa daglega hvíldarstund o. s. frv., en hjá þessu verður oft og einatt ekki komizt, ef vel á að fara, Það eru sönn orð, sem höfð eru eftir þekktasta berklalækni Dana, en þau eru þessi: Sá, sem einu sinni hefir verið berklaveik- ur, má aldrei gleyma því aftur. Vandamenn sjúklinganna þarf sjaldan að áminna um það, að láta ekki sitt eftir liggja til þess að fenginn bati haldist. Þeir gera það af fusum vilja og oft um efni fram. En þeim er nauðsynlegt að standa í stöðugu sambandi við þá lækna, sem kunnugastir eru og njóta ráða þeirra bæði um með- ferð sjúklingsins og ekki síður til þess að koma í veg fyrir að fleiri sýkist í fjölskyldunni Þá er röðin komin að þeim að- iljanum, sem stærstur er og marg- ur sjúklingurinn verður að leita (Framh. á 3. síðu). Jóh. Þorkelsson: Heilsuverndarstöð Akureyrar, sem starfar ennþá sem komið er, eingöngu að berklavörnum, hóf starfsemi sína 15. júlí 1938. Starfs- fólk stöðvarinnar er: yfirlæknir heilsuhælisins í Kristnesi, héraðs- læknirinn á Akureyri og 1 hjúkr- unarkona. Stöðin hefir haft opið 2var í viku, á þriðjudögum og föstudög- um, frá kl. 2i e. h. eða lengur eftir því hve miMð hefir verið að gera. Á þessum dögum hefir stöðin teMð á móti og rannsakað þá sjúMinga, sem sendir hafa verið til hennar af læknum, eða sem stöðin sjálf hefir stefnt til sín vegna gruns um berklaveiM, eða smitun frá sjúklingum, sem fund- ist hafa með smitandi berkla. Tvennt hefir það verið, sem taf- ið hefir mjög og hindrað starf- semi stöðvarinnar. í fyrsta lagi, að rannsaka þarf sjúMingana í hús- næði þvi er stöðin hefir leigt á Ráðhusveg 1 en gegnlýsa og rönt- genmynda þá á sjúMahúsinu, og verður þetta til þess að sjúkling- arnir þurfa að Wða sig 2var úr og í aftur. Þá verða þeir sem fyrstir mæta á stöðina oft að bíða all-lengi eftir gegnlýsingu, þar eð ekki er hægt að byrja á gegnlýs- ingu fyrr en loMð er öðrum rann- sóknum á öllum þeim sjúMingum, sem koma þann daginn. í öðru lagi eru röntgentæM sjúkrahússins fremur léleg og alltaf annað veifið að bila, svo að stundum verður að hætta við gegn- lýsingu þótt eftir sé að gegnlýsa marga sjuklinga, og verða þeir þá að koma aftur síðar til að fá þetta gert. Þetta er mjög bagalegt bæði fyrir læknana og sjúMingana. Vonandi fæst ráðin bót á hvoru- tveggju þessu í haust, er stöðin flytur inn í hina nýju sjúkrahús- byggingu þar sem einnig verða ný röntgentæM af nýjustu og beztu gerð. Starfssvið stöðvarinnar er fyrst og fremst að leita uppi sjúMinga með byrjandi berMaveiM og koma þeim til la^kninga á heilsuhæli eða annarstaðar, áður en sjúk- dómur þeirra kemst á það stig, að (Framii. á 3, síðu).