Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.2009, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.2009, Blaðsíða 12
Fæst í bókaverslunum um land allt. Verð 1.900,- kr. Pantanir: jons@snerpa.is MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRÍL 2009 12 LesbókGAGNRÝNI LEIKLIST Sædýrasafnið Þjóðleikhúsið „Í leikskrá segir höfundur að hún hafi skrifað leik- ritið „… án grein- armerkjasetningar og leik- lýsinga, í hálfgerðum stikkorðastíl“ og láti leik- stjóra eftir að setja textann á svið. Þessi stik- korðastíll er auðsær. Senur eru stuttar og text- inn á þá leið að hann gæti komið hvar sem er í sýningunni. Efni leikritsins er áhugavert, þörf mannsins að lifa af. Textinn er draumkenndur og oft fallegur. Sjón þýddi verkið í náinni sam- vinnu við höfundinn og er textinn alþýðlegur og lítt háfleygur […].“ Ingibjörg Þórisdóttir. Þú ert hér Borgarleikhúsið „Samkvæmt aldagamalli hefð fá […] leikskáld, leikstjóri, tónskáld, jafnan að rexa í og ráðskast með leikara í tvo til þrjá mánuði, en einungis sjálfir að stíga í eina mínútu á svið í lok frum- sýningar og verða svo að láta sig hverfa úr leik- húsinu, ofurselja það sem þeir oft telja „sitt“ hugverk eftirleiðis og alfarið leikurum. Þessir aðstandendur hafa nú einfaldlega ýtt leik- urunum út af sviðinu, enginn flækist þar fyrir þeim lengur, þeir gera þetta bara allt sjálfir! Þó ekki væri nema vegna þessarar uppreisnar gegn ofríki leikarans í íslensku leikhúsi, sem margir leikmyndateiknarar hefðu glaðir tekið þátt í, þessa lævísa brandara, gæfi ég sýning- unni fimm stjörnur, væri ég ekki alfarið á móti stjörnugjöf í samskiptum manna. María Kristjánsdóttir. Í GANGI Þ að er engin nýlunda að nýjar kynslóðir listamanna standi í spurn frammi fyr- ir yfirþyrmandi magni uppsafnaðra menningarafurða frá ólíkum menn- ingarskeiðum. Á sýningunni „Hver er hrædd- ur við hvern“ í D-sal Hafnarhússins veltir Jeannette Castioni því fyrir sér „hvort fólk gæti notið þessarar arfleifðar og skynjað hana á persónulegan hátt, en ekki sem upp- hafið farg sem gæti lagst ofan á einstak- lingana“ (Mbl. 19.3. ’09). Sýningargestum býðst að fara upp á upp- hækkaðan pall fyrir miðju salarins. Úr smáum götum berast upptökur af röddum ýmissa listamanna, þ.á m. súrrealistans Salva- dors Dalí, og má því segja að raddir fortíð- arinnar tali þarna beint í eyru þeirra gesta sem lúta niður, eða leggjast, til að hlusta. Á sama hátt þurfa leikendur í fallegu mynd- bandsverki að virkja líkamann til að end- urskapa stellingar þekktra, goðsögulegra höggmynda frá barokktímanum á Ítalíu. Þar sjást einstaklingar í hversdagslegum sam- tímaklæðnaði máta sig við goðsögulegar stell- ingar með því að ganga inn í sviðsmynd með sterkri hliðarlýsingu eða chiaroscuro – list- sögulegu stílbragði – og öðlast um stund- arsakir hlutdeild í tímaleysi og upphafinni fegurð. Myndbandsverkið dansar á mörkum helgi- myndar og afhelgunar, líkt og segja má um önnur verk sýningarinnar. Útlínur mannvera úr myndverkum frá barokk- og endurreisn- arskeiði sjást á reitaskiptum renningum á vegg og þar eru jafnframt tölumerkingar sem sýningargestir geta mátað við tölusett papp- írspjöld upp við vegg þar sem heiti verka og listamanna eru skrifuð í klifkenndum texta. Verkið virðist enduróma – og skopstæla – reynslu af söfnum þar sem menningararf- urinn getur sannarlega virkað endurtekning- arsamur og yfirþyrmandi. Upplýst eftirmynd bókaropnu á gólfinu gnæfir yfir smáar, út- klipptar ljósmyndir af fólki og gætu verið komnar beint úr ferðamannabæklingi. „Söfn- uðurinn“ stendur líkt og við helga bók, stað eða mynd. Embodied Meanings segir þar (en það er titill bókar eftir heimspekinginn og listgagnrýnandann Arthur C. Danto) og er þar væntanlega komin lykiláhersla Castioni: „holdgerving“ merkingarvídda, eða mannleg tjáning eins og hún birtist í „helgimyndum“ hefðarinnar, hverra merking umbreytist er þær öðlast nýjar merkingarhliðar í skynjun og líkama áhorfenda/viðtakenda. Í heild reynir sýningarþátttakan þó á full- flókinn hátt á samspil hlustunar, lesturs, sjón- og rýmisskynjunar, vitsmuna, þekkingar og ímyndunar – fyrir þá nautn og skynjun sem ætla má að Castioni sækist eftir fyrir okkar hönd. Hefðarinnar farg Morgunblaðið/Einar Falur MYNDLIST ANNA JÓA Myndbandsverkið dansar á mörkum helgimyndar og afhelgunar, líkt og segja má um önnur verk sýning- arinnar. HAFNARHÚSIÐ „Verkið virðist enduróma – og skopstæla – reynslu af söfnum þar sem menningararfurinn getur sannarlega virkað endurtekningarsamur og yfirþyrmandi.“ LISTASAFN REYKJAVÍKUR | HAFNARHÚS Jeanette Castioni – Hver er hræddur við hvern Til 3. maí 2009. Opið alla daga kl. 10-17. Aðgangur ókeypis. Sýningarstjóri: Yean Fee Quay.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.