Morgunblaðið - 08.04.2009, Blaðsíða 26
26 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2009
✝ Eggert Ísakssonfæddist á Raf-
nkelsstöðum í Garði 4.
júlí 1921. Hann lést á
Landspítalanum 30.
mars 2009. Hann var
sonur hjónanna Guð-
bjargar Þorsteins-
dóttur, f. í Holtsmúla í
Landsveit 28. jan.
1880, d. 11. feb. 1957
og Ísaks Bjarnasonar,
f. að Útskálum 10. okt.
1861, d. 19. okt. 1934.
Eggert átti eina hálf-
systur sammæðra,
Báru Sigurjónsdóttur, f. 16. júlí 1912,
d. 8. nóv. 1991.
Eggert kvæntist 1. des. 1945 Sess-
elju Erlendsdóttur, f. 15. júlí 1924, d.
24. ágúst 1995. Börn þeirra eru: 1)
Ellert flugvirki, f. 1. ág. 1946, kvænt-
ur Júlíönu Guðmundsdóttur. Sonur
hans og fyrri konu hans Önnu Sig-
urðard. er Ellert Birgir hársnyrtir, f.
18. des. 1978. Uppeldisdóttir Ellerts
og dóttir Júlíönu er Erna Kristjánsd.
kennari, f. 29. nóv. 1979, sambýlis-
maður Björn B. Jónsson, sonur
þeirra er Kristófer Júlían, f. 29. des.
2006. 2) Erla María kennari, f. 25.
sept. 1948, gift Steindóri V. Guðjóns-
Skerseyrarvegi 5 en síðan byggðu
þau 1957 að Arnarhrauni 39, þar
sem Eggert bjó til dauðadags. Egg-
ert starfaði hjá Venusi hf. í Hafn-
arfirði frá 1944-1974, en var skrif-
stofustjóri Hvals hf. frá 1974-1995.
Hann var bæjarfulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins í Hafnarfirði frá 1954-
1974. Eggert starfaði í ýmsum
stjórnum og ráðum í Hafnarfirði
m.a. fræðsluráði, hafnarnefnd,
stjórn Bæjarútgerðar Hafn-
arfjarðar, stjórn Lýsis og mjöls,
stjórn Sparisjóðs Hafnarfjarðar,
stjórn Sólvangs, húsnæðisnefnd
Hafnarfjarðar, stjórn bæjar- og hér-
aðsbókasafns Hafnarfjarðar, knatt-
spyrnuráði Hafnarfjarðar, stjórn
Norræna félagsins, stjórn Stanga-
veiðifélags Hafnarfjarðar og var
heiðursfélagi í Hestamannafélaginu
Sörla. Einnig var Eggert aðalsafn-
aðarfulltrúi Hafnarfjarðarkirkju og
í stjórn Kirkjugarðs Hafnarfjarðar
um árabil. Þá var hann formaður
Málfundafélagsins Magna, formað-
ur Landsmálafélagsins Fram, stofn-
félagi og heiðursfélagi Lionsklúbbs
Hafnarfjarðar og varð hann Melvin
Jones-félagi Lions 1989. Þá starfaði
Eggert mikið innan Frímúrararegl-
unnar á Íslandi og var þar í æðstu
stjórn um árabil.
Útför Eggerts verður gerð frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag, 8. apríl,
kl. 15.
syni kennara. Dætur
Erlu og fyrri manns
hennar, Rúnars Jó-
hannssonar (d. 1979),
eru: a) Helena kenn-
ari, f. 17. des. 1968,
unnusti Hilmar Sæ-
berg húsasmíðameist-
ari. Börn Helenu og
fyrri manns hennar,
Ólafs Þórs Antons-
sonar, eru Laufey
Rún, f. 11. sept. 1992,
Daði Freyr, f. 2. sept.
1995, og Sóley Erla, f.
6. júní 2003. b) Anna
Lísa, doktor í mannfræði, f. 1. ág.
1971, gift Soane Kata. Börn þeirra
eru: Mattías Makusi, f. 25. júlí 2004
og Sesilía Luna, f. 3. maí 2007. 3)
Guðbjörg Edda lyfjafræðingur, f. 13.
jan. 1951, gift Eyjólfi Þ. Haraldssyni
lækni. Synir þeirra eru Eggert
læknir, f. 22. ág. 1981, og Haraldur
Sveinn söngnemi, f. 15. mars 1985,
kvæntur Heiðrúnu Gissunni Kára-
dóttur. 4) Eggert Ísak, f. 26. apríl
1961, d. 10. nóv. 1964.
Eggert bjó í Garðinum til 13 ára
aldurs, en fluttist þá til Hafn-
arfjarðar. Heimili þeirra Sesselju
var alla tíð í Hafnarfirði, fyrst að
Tengdafaðir minn, Eggert Ísaks-
son, er látinn, 87 ára að aldri. Vegir
okkar Eggerts lágu saman eftir að ég
kynntist konu minni, Erlu Maríu,
dóttur Eggerts og Sesselju.
Við Eggert áttum það sameiginlegt
að vera báðir í hestamennsku á þess-
um árum. Þegar Eggert frétti að ég
járnaði hestana mína sjálfur varð
hann kátur og ég óx í áliti um nokkur
stig, því að það vantaði einmitt þannig
mann í þessa hestamannafjölskyldu.
Það er mér sérstaklega minnisstætt
þegar mér var boðið fyrst í reiðtúr
með fjölskyldu Erlu. Lagt var á hest-
ana í Hvítanesi í Hvalfirði þar sem
hestar Eggerts og fjölskyldu voru í
hagbeit. Þegar Ellert spyr pabba sinn
hvaða hest eigi að setja undir strák-
inn, svaraði Eggert „auðvitað Sokka“,
en Sokki var aðalreiðhestur hans og
mikill gæðingur. Já, ég skyldi fá besta
reiðhestinn. Við riðum sem leið lá inn
Hvalfjörð, upp með Fossá og langleið-
ina yfir Reynivallaháls, ekki mjög
langt í þetta skiptið. Þetta var aðeins
upphafið að fjölmörgum reiðtúrum
okkar, því næsta áratuginn áttum við
eftir að fara fjölmargar ferðir yfir
Reynivallaháls að Skógarhólum á
Þingvöllum, en þessi leið var í sér-
stöku uppáhaldi hjá okkur. Hestarnir
voru skildir eftir á Skógarhólum en
við ókum yfir í hvalstöðina í Hvalfirði
þar sem Eggert hafði afnot af einum
af bröggum Hvals hf., en bragginn er
ágætis íverustaður. Þarna kom öll
fjölskylda Eggerts og Sesselju sam-
an, það var grillað, spjallað og spilað
púkk langt fram á kvöld og barna-
börnin fóru niður í sjoppu og keyptu
stóra skammta af ís á góðu verði.
Daginn eftir var svo riðið frá Skóg-
arhólum að Hvítanesi.
Já, þau Eggert og Sesselja voru
höfðingjar heim að sækja, hvort sem
það var í „braggann“ eða á Arnar-
hraunið. Á hátíðum og tyllidögum
voru haldnar dýrindis veislur fyrir
fjölskylduna og veitingar, eins og þær
gerast bestar.
Eggert var einstaklega vinnusam-
ur maður og var hann nánast í öllum
félagastjórnum og nefndum sem
hugsast getur. Þegar aldurinn tók að
færast yfir Eggert og hann hættur
störfum var hann einstaklega þægi-
legur, geðgóður og nægjusamur.
Hann kvartaði aldrei og var sérlega
þakklátur fyrir hvert lítilræði sem var
gert fyrir hann. Síðustu tvö árin var
Eggert í þjálfun í Drafnarhúsi. Þar
leið honum sérlega vel og beið hann
spenntur eftir því að verða sóttur og
mátti ekki til þess hugsa að missa af
degi í Drafnarhúsi.
Ég er lánsamur að hafa átt öndveg-
ishjónin Eggert og Sesselju að
tengdaforeldrum og þakka ég inni-
lega einstök kynni.
Steindór Guðjónsson.
Eggert Ísaksson
Fleiri minningargreinar um Egg-
ert Ísaksson bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
✝ Valgerður Ein-arsdóttir Vest-
mann fæddist í Gimli í
Kanada 4. nóvember
1916. Hún lést á dval-
arheimilinu Höfða 1.
apríl sl. Foreldrar
hennar voru Einar B.
Vestmann járnsmiður
og Guðríður Nikulás-
dóttir húsmóðir, d. í
Kanada 1929. Systkini
Valgerðar: Daníel
Fjelsted, f. 1913,
Helgi Nikulás, f. 1915,
Einar Guðmundur, f.
1918, Ingibjörg, f. 1919, Anna Mar-
grét, f. 1922, Ásta Ólöf, f. 1925, og
Benedikt Frímann, f. 1927. Einar
kvæntist Jónínu Bjarnason 1930,
dóttir þeirra er er Elinora, f. í Kan-
ada 1930. Einar og Jónína skildu og
fluttist hún til Kanada og bjó þar síð-
an. Eftirlifandi eru Anna Margrét og
Elinora.
Valgerður giftist 23.11. 1935 Þór-
oddi Oddgeirssyni, f. 5.10. 1908, d.
1968, syni Oddgeirs Ólafssonar og
Margrétar Nikulásdóttur. Börn
þeirra eru: 1) Einar G., f. 1936, d.
2008. 2) Anna Margrét, f. 1938. Gift-
ist Viggó Haraldssyni. Þau skildu.
Börn þeirra: a) Jón Valgeir renni-
smiður. b) Anna María, var í sambúð
með Jóhanni Magnússyni, sonur
Ívar, Ísold Kristín og Gísli Dan. c)
Freyr. d) Valur Oddgeir, sambýlis-
kona Guðrún Helga Heiðarsdóttir.
6) Katrín, f. 1949. Var gift Þórarni
Sveinssyni. Börn þeirra: a) Sveinn.
Dóttir hans og Bennýjar Guð-
mundsdóttur er Sólbjört Harpa.
Sveinn kvæntist Rósamundu Sæv-
arsdóttur. Börn þeirra Ester, Bríet
og Iðunn. b) Einar Þór, maki Guð-
rún Pétursdóttir, börn þeirra Hugi
og María. c) Kristján, maki Fanney
Ingvarsdóttir, börn þeirra Perla
Dís og Gústaf Þór. d) Anna Björg.
7) Ólafur, f. 1954. Maki María
Björk Reynisdóttir. Börn þeirra
eru Ingvi Hrafn, Anna María,
Helga Rut og Sandra Björk.
Valgerður fluttist með föður sín-
um, stjúpmóður og sjö systkinum
heim til Íslands 1930. Þau settust að
á Akranesi, og Valgerður gekk í
kvöldskóla á Akranesi. Síðar var
hún í einn vetur í Héraðsskólanum
á Laugarvatni. Þóroddur og Val-
gerður hófu búskap á Akranesi en
fluttu fljótlega inn að Bekans-
stöðum í Skilmannahreppi, þar sem
hún bjó lengst af ævinnar. Eftir að
Þóroddur lést bjó Valgerður áfram
með aðstoð barna sinna til 1978, en
þá tók Anna Margrét dóttir hennar
við búskapnum og keypti síðan
ásamt syni sínum jörðina 1984.
Flutti Valgerður þá ásamt Einari
elsta syni sínum að Bekansstöðum
2. Þar bjó hún ásamt Einari þar til
þau fluttu á Dvalarheimilið Höfða
2002.
Útför Valgerðar fer fram frá
Akraneskirkju í dag, 8. apríl, kl. 14.
Meira: mbl.is/minningar
þeirra Sæþór. Þau
slitu samvistir. Giftist
Salómon. Börn
þeirra: Salómon
Tandri og Angela
Jennifer. Þau slitu
samvistir. c) Val-
gerður, sambýlis-
maður Jónas Hrólfs-
son. Seinni maður
Margrétar er Finnur
Guðmundsson. 3) Val-
ur Þór, f. 1939. Maki
Guðlaug Magn-
úsdóttir. Börn þeirra:
a) Bjarni, maki Linda
Hrönn Loftsdóttir, börn þeirra
Andri Valur og María Lind. b) Egill.
4) Jóhann, f. 1942. Maki Guðríður
Hannesdóttir. Börn þeirra eru: a)
Valgerður, dóttir hennar og Grét-
ars Þ. Magnússonar er Maríanna.
Valgerður var í sambúð með Þórði,
dóttir þeirra Sigurrós. Þau slitu
samvistir. Sambýlismaður er Svan-
ur. b) Þjóðbjörn. c) Rannveig, maki
Sigurbrandur Jakobsson. Dætur
þeirra Embla Rós og Aníta Sif. 5)
Bjarni Oddgeir, f. 1943. Maki Krist-
ín J. Dýrmundsdóttir. Börn þeirra:
a) Þóroddur, maki Íris Stef-
ánsdóttir, börn þeirra Styrkár,
Laila og Högna. b) Rúnar Dýr-
mundur, maki Aðalheiður Kristín
Jóhannsdóttir. Börn þeirra Bjarni
Okkur systkinin langar að minnast
hennar móður okkar í nokkrum orð-
um. Hún hefur skilað góðu ævistarfi.
Eignaðist mörg börn, barnabörn,
tengdabörn og langömmubörn. Hún
var góð mamma og tengdamamma og
mikil amma. Hún vildi hafa gott sam-
band við alla afkomendur og tengda-
fólk. Alltaf tilbúin að passa barnabörn
ef á þurfti að halda. Mundi eftir öllum
afmælum. Hún var félagslynd en hlé-
dræg. Hafði yndi af að ferðast en fjöl-
skyldan gekk fyrir. Seinni ár gat hún
ferðast meira. Hún fór tvisvar á
æskuslóðir í Kanada og naut þess vel.
Valgerður
Einarsdóttir Vestmann
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
KJARTAN SVEINSSON
símaverkstjóri
frá Vík í Mýrdal,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn
6. apríl.
Fyrir hönd vandamanna,
Þórir Kjartansson,
Sveinn Kjartansson,
Eyrún Kjartansdóttir,
Sigrún Kjartansdóttir.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
ODDNÝ KRISTJÁNSDÓTTIR,
Rauðanesi 2,
Borgarhreppi,
sem andaðist á Sjúkrahúsi Akraness fimmtudaginn
2. apríl, verður jarðsungin frá Borgarneskirkju
laugardaginn 11. apríl kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið.
Guðjón Viggósson,
Guðbjörg Guðjónsdóttir, Unnsteinn Þorsteinsson,
Kristján Guðjónsson,
Inga Lóa Guðjónsdóttir,
Fjóla Veronika Guðjónsdóttir, Francois Claes,
Ómar Hafberg Guðjónsson, Árný Sigtryggsdóttir
og ömmubörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÓLAFUR HELGI KRISTJÁNSSON
fyrrverandi skólastjóri
Reykjaskóla í Hrútafirði,
andaðist á Vífilsstöðum sunnudaginn 5. apríl.
Útförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Kristján Ólafsson,
Páll Ólafsson,
Þórður Ólafsson,
Ástmar Einar Ólafsson,
Hulda Friðþjófsdóttir.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, bróðir,
afi og langafi,
HREIÐAR JÓNSSON,
Bústaðavegi 67,
lést á Landspítalanum í Fossvogi sunnudaginn
29. mars.
Útför hans hefur farið fram í kyrrþey.
Hjartans þakkir til starfsfólks A7 á Landspítalanum
Fossvogi.
Fyrir hönd aðstandenda,
Gunnvör Rögnvaldsdóttir,
Rögnvaldur Hreiðarsson,
Jón Garðar Hreiðarsson, Guðrún Bergmann Reynisdóttir,
Gunnar Örn Hreiðarsson,
Hreiðar Þór Hreiðarsson,
afa- og langafabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og
afi,
BÖRKUR JÓNSSON,
Esjuvöllum 4,
Akranesi,
lést á heimili sínu laugardaginn 4. apríl.
Jarðarförin fer fram í kyrrþey.
Þeim sem vija minnast hans er bent á
styrktarreikning Geðhjálpar nr. 1158-26-65000
kt. 531180-0469.
Valgerður Sólveig Sigurðardóttir,
Freysteinn B. Barkarson,
Vignir Barkarson,
Friðmey B. Barkardóttir,
Brynhildur B. Barkardóttir,
Harpa B. Barkardóttir,
Mjöll B. Barkardóttir,
tengdabörn og barnabörn.