Morgunblaðið - 14.04.2009, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.04.2009, Blaðsíða 1
ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 2009 íþróttir Íshokkí Ísland lagði Ísrael, 4:3, í fyrsta sinn og náði þar með besta árangri sínum á heimsmeistaramóti fram til þessa – markmið landsliðsins náðust í Novi Sad 4 Íþróttir mbl.is „ÞESSI Íslandsmeistaratitill er aðeins ljúfari en árið 2007. Mér finnst eins og þetta hafi verið „lokaverkefnið“ sem ég byrjaði á árið 1992 þegar ég var að þjálfa megnið af þessum strákum. Ég er rosalega stoltur af þessu liði og þetta var frábær úrslitakeppni,“ sagði Bene- dikt Guðmundsson, þjálfari KR, eftir 84:83 sig- ur KR í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn gegn Grindavík í körfuknattleik karla. Bene- dikt hafði varla tíma til þess að ræða við Morg- unblaðið í leikslok þar sem fjölmargir voru að óska honum til hamingju, en Benedikt telur að nú sé rétti tíminn til þess að hleypa nýjum manni að í þjálfarastarfið hjá KR. „Ég er ekki búinn að ræða þetta við stjórn- ina með formlegum hætti en það er mín tilfinn- ing að núna sé rétti tíminn fyrir KR að fá nýjan þjálfara. Ég hef þjálfað marga af þessum strákum frá því að þeir voru smástrákar. Þeir hefðu gott af því að fá nýja og ferska rödd sem leiðbeinir þeim næstu árin,“ bætti Benedikt við en hann viðurkenndi að það hefði verið erfitt að sjá Grindvíkingana fara af stað í lokasókn leiksins. „Þeir áttu möguleika að tryggja sér titilinn með síðasta skotinu og það er ekki þægileg staða. Við fórum að verja það forskot sem við höfðum náð á síðustu mínútunum og það er aldrei vænlegt til árangurs. Ég kross- lagði fingurna í síðustu sókninni og vonaði það besta. Það var ekkert annað hægt að gera. Þessi lokakafli var bara einkennandi fyrir alla leikseríuna. Úrslitin ráðast á síðustu sekúndu í oddaleik. Að mínu mati var þetta tímabil eitt það skemmtilegasta í sögu úrvalsdeildarinnar. Það eru ótrúlega margir hæfileikaríkir og góð- ir leikmenn í deildinni. Þetta leit ekki vel út í upphafi tímabilsins eftir að bankarnir hrundu og óvissan var mikil hjá flestum liðum. Íslensk- ur körfubolti hefur bara eflst að mínu mati við þetta mótlæti,“ sagði Benedikt Guðmundsson. Fannar hrósar þjálfurum KR Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, var manna hressastur þegar hann tók við Íslandsmeist- arabikarnum í leikslok en hann er á þeirri skoðun að þjálfarateymi KR, Benedikt Guð- mundsson og Ingi Þór Steinþórsson, hafi unnið stórvirki þegar þeir sneru við gangi mála eftir stórtap KR í þriðja leiknum á heimavelli KR. „Við fórum í gegnum flott prógramm hjá þjálf- urunum eftir þann leik og ég er ekki í vafa um að það breytti öllu fyrir okkar lið í framhald- inu,“ sagði Fannar en hann lék með fjórar vill- ur á „bakinu“ lengst af leiks og skoraði 7 stig. „Grindvíkingar fengu tækifæri til þess að taka síðasta skotið og tryggja sér titilinn en ég var alveg viss um að það myndi ekki ganga upp þegar þeir hættu við að taka skot þegar um 14 sekúndur voru eftir af leiknum. Það kom hik á þá og við héldum bara áfram að leika vörnina eins og við erum vanir að gera. Ég vil nota tækifærið og þakka Grindvíkingum fyrir frá- bæra úrslitakeppni. Umgjörðin hjá báðum lið- um var einstök og ég held að það sé enginn íþróttaviðburður á Íslandi sem nær að toppa þetta sem við vorum að upplifa í þessari úr- slitakeppni,“ sagði Fannar. Ljúfari sigur en árið 2007  Benedikt Guðmundsson segir að nú sé rétti tíminn til þess að hleypa nýjum þjálfara að hjá KR Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is Morgunblaðið/Golli Bikar á loft Fannar Ólafsson átti ekki í vandræðum með að lyfta bikarnum á loft. Darri Hilm- arsson fagnar með fyrirliðanum í DHL-höllinni í gær eftir 84:83 sigur liðsins gegn Grindavík. „ÉG hef látið mig dreyma um þetta frá því ég var lítill strákur. Þetta er ástæðan fyrir því að ég kom heim til Íslands. Við erum með besta liðið á Íslandi og það tekur enginn þetta frá okkur,“ sagði Jakob Örn Sigurð- arson, leikmaður KR, eftir að hann hafði lyft Íslands- bikarnum á loft með fé- lögum sínum í DHL-höllinni í gær. Stemningin var ótrúleg hjá stuðnings- mönnum KR og Jakob átti erfitt með að lýsa því hvernig honum leið í leikslok. „Þetta er besta tilfinning sem ég hef fundið á mínum ferli,“ sagði Jakob en hann skoraði 22 stig og hann var mjög áberandi í fyrri hálfleik. Leik- stjórnandinn sagði að það hefði ekki verið „planað“ hjá KR að láta hann skjóta mikið í fyrri hálfleik. „Skotin hafa ekki farið ofan í hjá mér í undanförnum leikjum en ég læt leikinn frekar koma til mín í stað þess að vera að reyna of mikið sjálfur. Við breyttum engu fyr- ir leikinn og ég tók bara þau skot sem voru op- in. Þau fóru ofan í núna,“ bætti Jakob við. Stórsigur fyrir íslenskan körfubolta Böðvar Guðjónsson, formaður körfuknatt- leiksdeildar KR, tók á móti 700.000 kr. verð- launafé fyrir hönd deildarinnar í leikslok frá Iceland Express, styrktaraðila KKÍ. Formað- urinn tók virkan þátt flestöllu sem viðkemur liðinu í úrslitakeppninni. Hann var í miðjum hópi hörðustu stuðningsmanna liðsins í Grindavík á laugardaginn og formaðurinn missti af æsispennandi lokasekúndum odda- leiksins. „Ég var að passa að áhorfendur færu ekki inn á völlinn og ég sneri því baki í völlinn í síðustu sókninni. Ég var því bara ánægður að heyra fögnuð okkar stuðningsmanna,“ sagði Böðvar, en hann var afar ánægður með sam- starf KR við Grindavík í úrslitakeppninni. „Umgjörðin hjá báðum liðum var eins og best verður á kosið. Áhorfendur fengu að taka þátt í fjörinu með ýmsum hætti og stemningin var skemmtileg allan tíman. Ekkert neikvætt í gangi og ég held að þetta hafi verið stórsigur fyrir íslenskan körfubolta,“ sagði Böðvar Guð- jónsson, en hann var leikmaður í Íslandsmeist- araliði KR árið 1999. „Erum með besta liðið“ Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is Jakob Örn Sigurðarson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.