mannahafnar og liélt áfram námi. Fluttist síðan til Reykjavíkur og kenndi þar ungum stúlkum. 29 ára gömul giftist Torfhildur fakobi Hólm, verzlunarstjóra á Skagaströnd, en liann andaðist ári síðar. Fluttist hún þá að Hösk- uldsstöðum í Skagafirði og dvaldi þar árlangt, hjá Eggerti Ó. Brím, mági sínum. (Hann var kvæntur Ragnhildi, systur Torf- hildar). Þaðan fluttist Torfhildur svo til Vesturheims og dvaldi í Kanada næstu 13 ár. Þar lærði liún að mála, en byrjaði þá jafn- fram að skriía skáldsögur og gefa þær út. Síðustu æfiár sín átti Torfhildur heima í Reykjavík og andaðist þar 18. nóv. 1918. Torfhildur var f jölmenntuð og gáfuð dugnaðarkona, enda ligg- ur mikið eftir hana af rituðu máli. Öll hin stærri verk hennar eru um söguleg efni. Fyrsta sagan, Brynjólfur Sveinsson, biskup, kom út 1882, og vakti hún þegar mikla athygli. Elding, saga frá 10. öld, kom út 1889; er það veigamesta verk hennar. Jón biskup Vídalín (1892-3) og Jón biskup Arason (1902-8) komu báðar út í Draupni, tímariti, sem hún gaf út 1891 1908. Dvöl hét annað tímarit, sem liún gaf út og helgaði bókmenntum. Birti hún í því sögur, frumsamdar og þýddar. Ennfremur gaf hún út Sögur og ævintýri, barnasögur o. fl. Torfliildur vandaði til lieimilda í sögur sínar og n'áði vel blæ og aldaranda þeirrar tíðar, sem hún lýsir. Efni sagnanna var mönn- um hugstætt, enda urðu sögurnar brátt vinsælar af alþýðu manna. Stíll hennar er e. t. v. full orðmargur á stundum, en meira mega íslenzkar konur taka á við ritstörfin en hingað til, ef þær eiga að marka merkari spor en hún á þeirri braut, sem hún ruddi af svo miklum dugnaði og kjarki. Torfhildur lagði svo fyrir, að útgáfuréttur hennar skyldi seld- ur og andvirðinu varið til líknarmála. Nú hefur þetta verið gjört, og mun væntanlega á næstunni hafin útgáfa á ritum hennar. Kaflinn, sem hér birtist, er tekinn úr skáldsögunni Jón biskup Arason. Hann er úr síðari hluta sögunnar, í 12. árg. Draupnis (1908). Greinamerki og stafsetning er eins og í frumritinu. 11