Friða Einars: VIÐ SJO FRAM Bergsnasa raðir rísa meðíram sævi, roðast af skini, hvítna af þyngslum fanna, grána af regni, brotna af boðum hranna, byljótt og svöl og hörð er þeirra ævi. Óralöng ævi. Hafið rís og hnígur, heiðsvalir morgnar, kvöld í gylltri móðu, alvaldið svipar yfir kvöldi hljóðu, úðasvöl nótt af bláu lofti stígur niður á jörð og laugar dropum dagga drúpandi snös og fjörusteina sorfna, þá er sem landið dreymi daga horfna, döggin og myrkrið hafsins stunur þagga. 19