enn í dag er ekki sú kerling til í Saltvík, sem ekki kannast við sög- una um sprökuna hans Ólafs Jósúa. Sagan er á þessa leið: Ólafur Jósúa reri á laugardaginn fyrir livítasunnu. Þann sama dag kemur Ólafur Jósúa til Steinunnar systur sinnar með glæ- nýja spröku. Eigðu þetta, ljúfan,"segir Ólafur Jósúa og liendir spröku ;í eld- húsborðið. En Steinunn missir málið og starir til skiptis á sprökuna og bróður sinn, hann Ólaf ]ósúa. Þetta kemur henni mjög á óvænt. Ólafur Jósúa er ekki vanur að beina ferðum sínuín til hennar með soðningu, og hvað þá glænýja spröku. Hún verður að trúa. Hér liggur sprakan, stór, spikfeit spraka, á eldhúsborðinu. Þessari góðu konu Iiitnar um hjartaræturnar. Þakklæti hennar glitrar í tárum, sem læðast fram í augnakrókana. Ja, þú ert sannlega engin ættarskömm, Olafur Jósúa, að draga spröku núna, þegar þorpið er svo að segja matarlaust og enginn liefur neitt frábrugðið í hátíðamatinn. Það er b'ka meir en fallegt af þér að muna eftir systurgarminum þínum. Steinunn krossleggur hendur á maga og rennir augunum, sem minna, þrátt fyrir tárin, sem í þeim glitruðu rétt áðan, átakanlega á köld og stirðnuð augu sprökunnar. Hún rennir þeim rétt á liina miklu sjóhetju, hann Ólaf Jósúa, sem er höfuð ættarinnar. Hann lætur sig þá ekki draga um það, maðurinn sá, að rétta henni systur sinni spröku á laugardaginn fyrir Iivítasunnu. Ólafur Jósúa verður að setjast og drekka þrjá bolla af lútsterku kaffí með lummum og kleinum. Meðan hann sötrar kaffið, horfir Steinunn með velþóknun á þennan virðulega niðja ættarinnar. Verst, að Ólafur Jósúa kvongast ekki, hugsar hún. Ólafur Jósúa ætti skilið að eignast hrausta, sjósækna sonu, sem líktust honum í einu og öllu. Ólafur Jósúa kveður og þakkar fyrir veittar velgerðir. Stein- unn hengir sprökuna út á skúrhliðina. Þar geymist hún óskemmd til morguns, og þar geta hvorki hundar, kettir, mýs eða rottur grandað henni. En Ólafur Jósúa kemur víðar við. Hann á fleiri ættmenn í þessu þorpi, sem honum ber að minnast. Skömmu síðar ber hann að dyrum hjá Sigríði systur sinni. Hún er aðeins ári yngri en 24