var að hugsa um, rétt í þessu, sá rétti maður. Hann Gvendur í Sölvabæ kom áðan og sagði henni þær fréttir, að Ólafur Jósúa lieíði róið í dag. Arndís þrífur pottinn af eldinum. Nú verður hún að gefa sér tírna til þess að tala við Ólaf Jósúa. Hún gengur svo tvö, þrjú stór skref fram til dyra og hálf dregur Olaf Jósúa inn á mitt eldhúsgólfið, án þess að hann fái viðnám veitt. Svitinn bogar af henni, hátíð fer í hönd, og kostgangararnir" krefjast matar, án ¦'illia refja. En það er líkast því, að sjórinn sé þurrausinn eða þá, að guð líti í vanþóknun til Saltvíkurbúa. Hér á þessu vori sést varla branda úr sjó. Fiskurinn er þó, eins og guð og menn vita, aðalbjörgin þeirra hérna í Saltvík. Þú einn getur hjálpað mér, Ólafur Jósúa þú einn. Ölafur Jósúa sér mætavel, að konan er í mikilli geðshræringu. Hann stingur höndum í vasa og bíður með spekt og grafarró þess, sem koma skal. Ólafur Jósúa er forviða, en jafnframt forvitinn og líka dálítið upp með sér af Jjeim mikla heiðri, sem honum hlotnast nú. Það er þá engin smærri en frúin sjálf í veitingahús- mu í Saltvík, sem ávarpar hann svona, blessuð manneskjan. ÓJafi Jósúa hitnar um hjartaræturnar. Hún er ekkja, lu'in Arndís, og 'iann er engum háður. Það skyldi þó aldrei vera, að hún sé svona hálskotin í mér, hugsar hann, og það fer eins og fiðringur um hann allan við þá hugsun. Líklega væri Joað ekki svo vitlaust, goður matur og öl daglega, og svo hitar Arndís rúmið. IJú getur hjálpað mér um fisk, Ólafur Jósúa. Augu Arndísar eru svört og tindrandi og hvíla með einhverjum töfrajjunga á Ólafi Jósúa. Þú fékkst spröku, lieldur liún áfram, þegar hann svarar engu, stóra, feita og fallega spröku, var mér sagt. Þá sagði ég svona við sjálfa mig. Hann Olafur Jósúa gleymir mér ekki, svo mörg ölglös- m hefur hann drukkið í eldhúsinu liérna, svo marga kaffibollana hefur liann líka drukkið í prívatinu" mínu, og eins og Ólafur Jósúa veit, koma þangað ekki nema vildustu vinir mínir. Augu Arndísar eru svo lieit og röddin svo biðjandi áfjáð, að Ólafur Jósúa fer allur hjá sér. Hann tekur hendur úr vösum, klórar sér 1 höfðinu og tvístígur á miðju gólfi. Þetta er auðvitað ekki beint 27