Morguninn eftir fær Arndís heimsókn. Steinunn og Sigríður, systur Ólafs Jósúa, reka höfuðið inn úr gættinni og spyrja: Ertu ein? Þegar þær sjá, að hún er ein, stíga þær inn fyrir. Þær eru svo annarlegar útlits, svo háfölar og flóttalegar, að Arndísi verður star- sýnt á þær. Það er líka að voniun, því að brátt verður hún þess askynja, að þær fá ekki tára bundizt yfir spillingunni hér í Saltvík, Og það nú á þessum tímamótum. Svo aðþrengdar eru þær, að fyrst 1 stað koma þær varla upp orði. Arndísi verður ekki um sel. Hér hlýtur að hafa gerzt eitthvað voðalegt, eitthvað alveg hræðilegt, sem varla verður syndlaust rætt á þessum helga degi. Arndís, sem ætlaði sér rétt í þessu að steikja sprökuna hans Olafs Jósúa, gleym- jr sér nú algerlega. Sprakan liggur á borðinu niðurskorin og bíð- ur eftir afgreiðslu. Hvað hefur borið við? spyr Arndís. 1 [átíðamatnum okkar hefur verið stolið stolið, heyrirðu það stolið á sjálfa hvítasunriunótt. Stolið hefur matnum ykkar verið stolið? hváir Arndís og lýtur nær þeim. Þetta er dálítið nýstárlegt, því að þjófgefriir hafa Saltvíkurbúar ekki veriðtil þessa. Já, aldeilis rétt, stolið, sögðum við. Og við stöndum við það. Hann bróðir minn, hann ólafur Jósúa, gaf mér glænýja spröku. Svo lifandi var hún, að hún blakaði sporðinum á eldhúsborðinu. Eg hengdi hana út. í morgun er hún horfin, gersamlega horfin. Það var ekki tangur né tetur eftir, ekki einu sinni snærisspottinn, sem hélt lienni uppi. Sama segi ég. Ólafur Jósúa gaf mér líka spröku. Mín var líka horfin í morgun. Það vinnur mikið lil iV)lkið hérna að gera sig ;ið þjóf á slíkri nótlu. Og ég segi nú fyrir mig, að ég er ekki betri manneskja en það, að ég vona, að sprakan sitji föst í hálsi þeim, sem hefur stolið lienni, segir Sigríður og verður um leið Htið á eldhúsborðið. Nei, hvað sé ég. Þú ert þá með spröku og nú mæna systurn- ar á sprökuna niðurskornu, eins og þær vænti þess að sjá sitt íangamark á hverri sneið. Hvar hvar fékkstu þessa spröku, spyrja þær samtímis. Ægileg grunsemd læðist inn hjá þeim systrum, þótt þær segi ekki annað 29