Ólína Jónasdóttir sextug Ólína Jónasdóttir, skáldkona á Sauðárkrókir varð sextug á þessu ári. Hún fæddist á Silfrastöðum í Skagafirði 8. apríl 1885. For- eldrar hennar voru Jónas Hallgrímsson og Þórey Magnúsdóttir, er bjuggu lengst að Fremri-Kotum í Norðurárdal í Skagafirði. Hagmælska er mikil í ætt Ólínu. Móðuramma hennar var Guð- rún Halldsdóttir (sjá bls. 60). Móðurafi Ólínu, Magnús Jóns- son frá Bólu, var og prýðilega hagmæltur. Ólína fluttist fárra ára gömul með foreldrum sínum að Fremri- Kotum og ólst þar upp. Hún naut engrar skólamenntunar í æsku, en vandist venjulegum sveitastörfum. Rúmlega tvítug giftist hún frænda sínum Halli Jónssyni í Brekkukoti í Blönduhlíð. Voru þau bæði prýðilega hagorð og Ijóðelsk. Samvistir þeirra urðu skammar. Hallur drukknaði í Hér- aðsvötnum árið 1909. Skömmu eftir missi manns síns hætti Ólína búskap. Dvaldi hún síðan víðsvegar í Skagafirði og á nú heima á Sauðárkróki. Hefur liún átt við mikla vanheilsu að stríða hin síðari ár. , 38