Sjatna brátt mun svell og hríð. Sólaráttin vinnur. Þorri í sátt við land og lýð lokaþáttinn spinnur. Vorið og vorþráin: Gullið sjáum g-eislai'lóð glitra á bláum sænum. Kveður áin ástarljóð, andar þrá í blænum. Sjást hér engin sólarspor, söngfugl hver er dapur. Hvenær ferðu að koma vor? Kuldinn er svo napur. Og hugurinn reikar enn til átthaganna: Hér á bakvið blómadrag bláar kvaka lindir. Hugurinn vakir hress í dag. Hann er að taka myndir. Lækjaraðir fjöllum frá fram sér hraða af stalli, sýnist glaður svipur á Silfrastaðafjalli. 42