1944 Eítir HALLDÓRU JÓNSDÓTTUR Margur er manna vandi. Margur er rakki í bandi. Þeir komu og létu í landi lengi greipar sópa gripu ílesla glópa. Grótur varð og tregi. Þeir komu úr vesturvegi. Vont mun þar innræti. Mín kvöl þeim vekur kæti. Hraðinn gamla hræðir. Hér er allt á íörum. Er það blóð, sem blæðir, barn, á þínum vörum? Marrar hurð á hjörum. Heyrirðu þetta ekki? Gustar um borð og bekki. Brothljóð. Hvín og þýtur. Bitrast hatrið bítur. Böl voru þessi kynni. Þú áttir að vera inni. Allt er blandið táli. mein í hverju máli, þá myrkrið tekur völdin. Það er svo kalt á kvöldin. Komdu, guð að finna. Senn eru goldin gjöldin. Eg geng til feðra minna. 62