veðja. Hún veit vel, að Kristó er kvenhatari, sem aldrei talar við stúlkur." Ennþá meira afrek að sigra hann," sagði ég, sem var körg eins og kind. Sigga, ijósið og sáttasemjarinn í stofunni, tók nú málið í'yrir. Þið veðjið ekkert," sagði hún. Kristó elskaði einu sinni stúlku, sem var hérna. Hún dó. Síðan er hann svo einrænn, að hann talar helzt aldrei við neinn, og ungar stúlkur forðast hann eins og fjandann sjálfan." Og hann er líka svo kaldur, að Dísa gæti fengið lungnabólgu," gall í Rúnu. Ég er ekkert hrædd við lungnabólgu," sagði ég, því ég vildi ekki láta undan. Sigga varð hrædd um, að þetta yrði hitamál og vildi koma á sættum. ,,Ég legg til, að við lieitum Dísu ein- hverjum verðlaunum, ef henni tekst að fá Kristó með sér á göngu innan hálfs mánaðar. Þið getið haft það konfektkassa, ef ykkur líkar það bezt." Tillagan var samþykkt með dynjandi lófataki, og stelpurnar dönsuðu með mig um gólfið. Árásin hófst með því, að ég spurði Kristó um klukkuna, og sendi honum blíðasta brosið mitt um leið. Harin leit ekki á mig, en sýndi mér samt úrið. Næsta dag spurði ég liann frétta, hann hlustaði alltaf á hádegisútvarpið. Ekkert nýtt," sagði hann stuttaralega, þegar ég hafði endurtekið spurninguna og hnippt í hann. Svona gekk dag eftir dag. Ef hann anzaði mér voru svörin hranaleg og stutt. Ef ég settist hjá honum og reyndi að fá hann til að rabba við mig, hvarf hann inn í sjálfan sig, eins og brodd- göltur, en ég gafst upp. Vika leið og ískyggilega mikið af þeirri næstu. Stelpurnar stríddu mér eftir getu, þær spurðu daglega, hvort ekki mætti panta kassann, hvort ég vildi heldur hafa hann frá Freyju eða Víkingi. Þegar einn dagur var eitir af frestinum, ákvað ég að gera úrslitatilraun og viðurkenna síðan ósigur minn. Veðrið var yndislegt þennan dag, hlýtt og fagurt, eins og það getur bezt verið á íslenzkum degi í júlí. Kristó sat úti á túni, einn að vanda. Eg sleit upp fallegan fífil, sem ég iaumaðist með til hans. Nú skal ég gera afa fínan," sagði ég hlæjandi og festi fífilinn í jakkann hans. Hann leit á mig, dökku augun hans yoru ein- kennilega falleg, þó í þeim byggi hyldjúpt myrkur. Þú ert 77